Er það ekki rétt skilið hjá mér að þessi möpp séu búin til af einhverjum þriðja aðila? Einhverjum kalli útí bæ, meðlimi BF samfélagsins? Ef svo er, þá er ekki hægt að bera þetta saman við þessi nýju official möpp, eins og Coral Sea og BoB, því að framleiðeindur þessara mappa hafa ekki verið með sömu hugmyndir og þeir sem gerðu official möppin…
…en hins vegar hef ég nú ekki skoðað þennan pakka, þannig að ég veit ekkert hvernig þessi möpp eru…
Eitt sem ég vil benda á ef þetta væri nú sett á símnet, þá er alltaf til staðar þessi hópur spilara sem annað hvort skildi ekki af hverju viðkomandi dytti stundum út á Mapchange, kæmi hingað, spyrði hvað væri að gerast, fengi svarið “það var settur mappack inná Simnet, stop asking!”, mundi spurja um link á dýrðina (jafnvel þótt hann væri að finna hérna á /bf, skrifað í 28 punkta rauðu letri), reyna að setja þetta inná tölvuna sína, gefast upp eftir 5 mínútur og fara að sofa. Eða eitthvað í þá áttina. Ég kanast nefnilega við hvað það getur verið erfitt að fá fólk til að sækja custom möpp, jafnvel ef um er að ræða eina serverinn sem það spilar á.<br><br>===
TFC: |CDC|Nosebleed-TPF-
BF1942: [FUBAR] Nosebleed
NS og ET og CoD og flestallt annað: Nosebleed