sko… ég var á umræddum stað þegar umrætt atvik átti sér stað… ég tók ekki eftir því hvaða einstaklingur það var sem vildi kicka crymaker, en ég tók eftir því að ég þurfti 4 sinnum í það minnsta að velja “no” þegar ég var spurður hvort ég vildi kicka honum, ég vildi ekki kicka honum því það sem ég sá til hans, þá var hann sem medic að taka þátt í áhlaupum á fána óvinarins, og einnig upptekinn við að heala náungann, þar á meðal mig. auk þess, þá byrjaði fyrsta votekickið, þegar hann var með 0 kill, -2 stig, og búinn að deyja um 1-2, og í 4. skiptið sem ég ákvað að vote-a hann ekki út… var hann ennþá með 2 stigum minna en killin, semsagt ekkert meira teamkill en þetta eina óvart.
ég verð bara að segja, tengt þessu atviki, en þó ekki beint, að mér finnst alveg hundleiðinlegt þetta vote-æði sem er á simnet núna eftir að 1.6 kom út, og vonast ég til að það endi sem fyrst!
takk fyrir áheyrnina. Kv. [89th]COL. Ironfist