Þjófnaður er hið bezta mál, skiljanlegt er að menn vilji bíða nokkrar sek til að tryggja að enginn rocket kall sé nálægt og leggja svo af stað, þetta er ekkert nema góð herkænska…
En allt öðru máli gegnir um þá vesælu aumingja sem keyra tank inná óvina spawn og drepa þar til þeir springa, þetta þykir hin mesta svívirða, aumingjagangur, stigahórun og leiðinleg spilamennska. Það er ekkert sport í að skjóta kalla sem eru að spawna, nema maður sé sniper.
Ég legg nú til við þingheim að hann taki til skoðunar eftirfarandi:
Kikka má mönnum fyrir óhóflegt spawncamp, þ.e.a.s. þegar maður fer á tank inná óvina base sem ekki er hægt að ná. (Ekki þykir æskilegt að refsa þeim sem keyra gegnum flugvöllinn í Market Garden, enda stoppi þeir ekki, heldur taki út flugvélar) Snipers, artillery, flugvélar og skip eru leyfileg í árásir á spawn. Fari maður fótgangandi inná base og hangir þar getur hann ekki talist spawncamper þar sem óþarflega lítið þarf til að ráða hann af dögum. Taki þessi maður óvina tank og byrjar að spawncampa skal hann varaður við og svo kikkað.
Einnig þykir ástæða til að minna lesendur á að oft er gott að horfa á kortið, þar eru miklar upplýsingar að finna og gætu þær komið flugmönnun sérlega vel því oftar en ekki hefur liðsfélagi stolið tank sem hann vill halda lengur í en 2 sek.
Svo vill ég endurtaka það sem ég sagði hér um daginn: Ef eitthver stelur frá mér tæki þegar ég er að gera við það þá verður sá hinn sami myrtur hið snarasta, óháð gangi liðsins eða annarra aðstæðna.
Takk fyrir að lesa.
Virðingarfylls
[I'm]Faikus Denubius
Faikus_Denubius@hotmail.com
- I've got people skills damit, people skills! What the hell is wrong with you people!
- A one that isn't cold is scarcely a one at all.
- These pants may not look like much, kid, but they’ve got it where it counts.
- Before you criticize someone, you should walk a mile in their shoes.
That way, when you criticize them, you're a mile away and you have their shoes.
- I am a nobody. Nobody is perfect. Therefore, I am perfect.
- I am in shape. Round is a shape.
- In this life there are few things as nice as a good sit.</font