Fyrir það fyrsta þá er 256 minni varla nóg.
1. 112Mb in use af winxp er nokkuð mikið (þú nærð því niður í 80MB) og væri best að minnka það, farðu í start-run-skrifaðu msconfig,,farðu í startup (lengst til hægri) og þar má taka hak af því sem þú vilt ekki að xp starti upp. ATH þú mátt taka hak af öllu ef þú vilt, þú skemmir ekkert, en hugsanlega eru 3-4 atriði sem þú vilt hafa hak í, svo sem skjástilling, ofl. en óhætt að prufa sig áfram, muna að restarta tölvu og er þú færð skilaboð þar, skaltu haka við og gera ok.
2. Leikurinn er að nota amk um 600Mb minni svo ef þú ert með 256 minni notar hún harða diskinn sem vinnsluminni. Þá er mjög mikilvægt (einnig mikilvægt fyrir þá sem eru með 512minni) að vera með cache og uncache speed á harða disknum í lagi (gríðarlega mikilvægt). Farðu á heimasíðu www.pcpitstop.com og keyrðu þar full test (örugg síða styrkt af pcworld). Þegar þú færð niðurstöður geturðu lagað það sem sett er útá, en að auki er mikilvægt að fara í performance flagg á c drifi og skoða þar cache speed og uncache speed. Að mig minnir þarf cache speed að vera yfir 300 og uncache speed yfir 3, en gott er að skoða prósentutölu sem kemur á eftir og hafa það yfir 100%. Ef þú kemur illa út þar, skaltu fá þér defragmenter(windows defragmenter er ekki nógu góður) sem heitir diskeeper og keyra hann (algjört möst að keyra hann), eftir það skal skoða cache og uncache speed aftur á www.pcpitstop.com…í örfáum tilvikum leysir þetta ekki uncache speed vandann og þá þarf að fara dýpra í málið (útskýri það síðar ef þörf er á því)
3. Þrátt fyrir þetta skaltu stækka minnið hjá þér, það er best, 512 til viðbótar kostar 7600 og 256 kostar 4500kr (sjá www.vaktin.is).
4. Náðu í nýjana skjákortsdriver, hljóðkortsdriver, móðurborðsdriver (sérstaklega ide bus driver) og installaðu því, þetta er einnig gríðarlega mikilvægt.
5.Allir íhlutir hjá þér eru í lagi að minninu undanskildu.
6.Einnig er hægt að stilla leikinn sérstaklega svo hann keyri betur, en þó að því gefnu að fyrri þættir sem ég hef nefnt hér séu leystir. Skrifa meira um stillingar á leik við tækifæri.
Vinsamlegast látið vita hvernig gengur að ráða fram úr þessum leiðbeiningum því ég hef hugsað mér að gera ýtarlegan Hjálparkork fyrir allt þetta.<br><br>Kveðjur
[I'm]Eagle