Ef það skyldi hafa farið framhjá einhverjum þá kom hér fram frábær hugmynd hjá catgirl í síðasta pósti um að búa til kubbinn “Bókaormur vikunnar”. Þessi kubbur verður bráðum til (sbr. tilkynningu þess efnis í tilkynningakubbi), en þeir sem hafa áhuga á að vera bókaormar vikunnar eru eindregið hvattir til þess að hafa samband við mig og þeir verða settir á listann sem verður birtur við fyrsta tækifæri (svo að hver og einn geti séð hvenær röðin kemur að honum).

Um leið vil ég minna á kubbinn “Bók mánaðarins” en ef einhver hefur áhuga á að gera stuttlega grein fyrir góðri bók, þá má sá hinn sama endilega hafa samband við mig og við hjálpumst að við að koma þeirri umfjöllun á sinn stað :)<br><br>_____________________________________
Aut tace aut loquere meliora silentio.
___________________________________