Jú reyndar er hún búin að vera í allt sumar :/ En það er nú bara svo mikið að gera að ég hef ekki náð að lesa neinar bækur (sem eru við hæfi) nýlega, hvað þá skrifa neitt. Ég bara með nefið ofan í fræðibókum. Það mætti svo sem fjalla um þær líka (þetta áhugamál fjallar um bækur almennt, ekki bara bókmenntir) en ég veit ekki hvort nokkur hér hefur áhuga á slíku :) En það dettur aldrei neinum í hug að senda inn umfjöllun um bók mánaðarins. Ég myndi hins vegar þiggja umfjöllun frá einhverjum, ef hún er sómasamlega unnin. Þetta gefur að vísu engin stig, en… hmm… ætli fólk geti látið sér nægja smá “respect”?<br><br>_____________________________________
Aut tace aut loquere meliora silentio.
___________________________________