Það er mjög skrýtið með Harry, hann er orðinn 14 ára í síðustu bókinni sem var gefin út, og hann er varla búinn að tala við neina stelpu síðan hann byrjaði við Hogwarts. Og alltaf þegar einhver stelpa yrðir á hann þá verður hann eldrauður.
Það ætti að skrifa til Rowling og segja henni að bæta við einni kærustu fyrir Harry. Það er sagt að í næstu bók falli hugur hans til kínversku stúlkunnar en allt er best í hófi. ;)