Það er rétt! Mér finnst heldur ekki að við ættum að vera gefast upp.
Gerum alla brjálaða, um að gera.
En ég mæli samt frekar með því að við ráðumst á Korkinn á forsíðunni heldur en hér. Einfaldlega vegna þess að ég efast um að Vefstjóri sé stöðugt að lesa bréf hér í þessu áhugamáli frekar en í öðrum áhugamálum.
Ráðumst á Forsíðukorkinn!!!
Og haldið áfram að senda Vefstjóra tölvupóst!
Ég endursendi mitt bréf oft sem hljómar svona:
Er möguleiki á því að Tolkien-áhugamál geti verið stofnað á hugi.is ?
Eftir að hafa verið meðlimur í nokkurn tíma hef ég orðið var við það að fólk er mjög áhugasamt um sögur Tolkiens. Sérstaklega núna þegar verið er að kvikmynda Hringadróttinssögu. Úti á Internetinu er til hellingur af erlendum klúbbum og vefum, bara um kvikmyndirnar.
Á “Kvikmyndir-DVD” koma mjög oft upp umræður um Lord of the Rings-kvikmyndirnar og eru þær nokkuð fjölsóttar (auk þess sem korkurinn er yfirfullur af bréfum um stofnun Tolkien-áhugamáls):
http://www.hugi.is/dvd/greinar.php?grein_id=20310http://www.hugi.is/dvd/greinar.php?grein_id=19121Einnig kom á “Star Wars” nokkuð vinsæl umræða upp:
http://www.hugi.is/starwars/greinar.php?grein_id=11331Á “Bækur” koma líka oft upp Lord of the Rings-umræður.
Og á forsíðunni voru þó nokkrir sem voru fullkomlega sammála Tolkien-áhugamáli:
http://www.hugi.is/forsida/korkar.php?sMonitor=viewpost&iPostID=217159&iBoardID=53&iStart=10http://www.hugi.is/forsida/korkar.php?sMonitor=viewpost&iPostID=193261&iBoardID=53&iStart=10Ég er nokkuð viss um að ef áhugamálið kæmi, yrði það mjög vinsælt. Tökum til dæmis vefsíðu mína (www.simnet.is/hringur) en þar hafa á síðasta mánuði um 260 manns komið á þessum eina mánuði sem vefurinn hefur verið til. Sjálfur hef ég verið að reyna að búa til klúbb í kringum þetta, en það er nokkuð erfitt að gera upp á eigin spýtur.
Með fyrirfram þökk
Ragnar Björnsson (á Huga: Ratatoskur)
bgunnarsson@simnet.is
<br><br>_____________________________“Spyrðu eigi Álfa ráða því þeir segja bæði já og nei.”
www.simnet.is/hringu