FRÁBÆRT! Ég verð að fá að upphrópa þig aðeins, allt í vinalegheitum af minni hálfu samt. Vona að þú takir þessu ekki of illa.
Þú ert eins og persóna úr bók, leikriti, bíómynd… einhverju skáldverki - þú ert gæinn sem ert svo yfirmáta hooked á einhverju, gersamlega háður því og öllu sem það snertir. Það vita allir hver uppáhaldshljómsveitin þín, nikkið þitt segir allt um það sem segja þarf. Það sem er hinsvegar stórkostlegast við þetta allt saman, er að þitt líf virðist eingöngu snúast um Nirvana. Ég les talsvert á Huga, þar sem ég er að vinna á næturvöktum og hef mikinn tíma til að vafra um netið, en ég held að ég hafi einungis lesið 1-2 pósta eftir þig, þar sem ekkert var minnst á Nirvana! 1-2, og nú ert þú einn af þeim virkari í að tjá þig (svona í þeirra hópi). Ég veit að það hefur verið skotið á þig útaf þessu, en ég bara varð! ég er ekki að argast í þér á neinn hátt, en það færi heldur ekki í taugarnar á mér ef þú tækir þig nú til og færir að prófa málefnalegar umræður með afstæðu hugarfari… Nirvana (hljómsveitin) er ekki nafli alheimsis og vendipunktur veraldarinnar okkar. Nirvana var góð hljómsveit, ég get alveg átt það sammerkt með þér, en þrátt fyrir að hlusta mikið á tónlist, lesa mikið af bókum, horfa mikið á bíómyndir, og vera þekktur fyrir það að taka mér það virkilega fyrir hendur sem ég fæ áhuga á, hef ég aldrei, ALDREI verið jafn háður einu né neinu og þú virðist vera! og trúðu mér bara, það er ekki hrós…
En ég varð bara að segja þér frá því hversu magnað mér þykir þetta; þú ert bara eins og einhver fyrirfram sköpuð persóna sem ert hérna til að stytta okkur stundirnar með þráhyggjunni þinn… einskonar Ali G, Johnny Naz týpa - ertu það nokkuð?
-I don't really come from outer space.