Hvergi hægt að fá Iphone á skynsamlegu verði á Íslandi. Iphone 4s er á svipuðu verði og Samsung Galaxy S III, sá sími er betri en 4s að flestu leyti.
Ef þú ætlar á annað borð að fá þér Iphone þá mæli ég með að kaupa þér Iphone 5 í landi þar sem verðið er ekki stjarnfræðilegt. Ef þú myndir gera það eða biðja einhvern sem þú þekkir um að kaupa fyrir þig þá þarf bara að passa uppá að hafa símann ekki í umbúðunum heldur í handfarangri eða jafnvel í vasa. Væri lame að vera tekinn í tollinum með síma ónotaðan úr pakningunni.
Nú ef það er ekki í boði þá hugsa ég að ódýrasta lausnin sé að kaupa lítið notaðan síma af einhverjum sem ætlar að kaupa sér Iphone 5 og þarf að losna við 4s símann sinn. Bland.is gæti verið ágætur vettvangur til að skoða slíkt, eða auglýsa á facebook.
Gleðilegt nýtt ár!