*VIÐVÖRUN* Orðbragð ekki fyrir viðkvæma!



Error (-48) kemur alltaf upp þegar ég reyni að færa lög úr ætúns inn á æpodinn.
Helvítis mac ógeðið mitt sem á ekki skilið að vera kallað tölva vill ekki setja nein lög inn á æpodinn.
Já, hann er stilltur á andskotans manual.
Já, ég er andskotinn hafi það búin að uppfæra upp í ætúns 7,6.
Já, æpodinn er tengdur við andskotans hvíta ógeðið með tökkunum og skjánum.
Það er andskotinn hafi það ekkert að hvorki “tölvunni” né æpodinum. Svo hvers vegna í fjandanum get ég ekki sett nein lög inn á hann?!?

Vona að einhver sjái sér fært um að hjálpa mér þrátt fyrir þessa niðurrökkun.


Afsakið orðbragðið, en þetta er ekki í fyrsta skipti sem þetta gerist og ég er búin að fá mig fullsadda á mökkum og farin að sjá mikið eftir því að hafa ekki fengið mér alvöru tölvu.
Biðst líka innilega afsökunar ef ég hef móðgað einhvern.