Úff! Ég var með 130 GB af tónlist og guð má vita hversu mörg lög… Bara eitthvers konar árátta sem kom mér í koll, því nú get ég varla hlustað á tónlist lengur því ég þarf alltaf að skippa svo mörgum súrum lögum til að finna eitthvað sem ég fíla. Ég er búinn að henda megninu af þessu núna, en þetta er voða erfitt og tímafrekt að velja og hafna… Er aftur kominn út í það að kaupa og nota venjulega, gamaldags, geisladiska. :Þ