iPodinn minn hefur frosið tvisvar, einu sinni þegar ég var að hlusta á hann og þá fraus hann bara, ég nennti ekki að gera neitt svo ég lét hann bara ofan í skúffu. Daginn eftir var skjárinn bara svartur og ég hlóð hann í tölvunni og þá var allt í lagi.
En núna er hann frosinn og hann fraus þegar ég var að hlusta á hann og það stóð á honum, No battery power remains. Please connect iPod to power. Ég veit alveg hvað það þýðir og svona, en hann er frosinn núna og þetta stendur bara, uppí í horni stendur svona play ( svona þríhyrningur á hlið ) eins og ég sé að hlusta, svo stendur 1 :57 PM þannig að ég veit að hann er pottþétt frosinn. Ég er búin að tengja hann við tölvuna og svona. En afhverju frýs hann ? Og hvernig er hægt að laga það?