Besta leiðin sem ég veit er að búa til nýjan playlist á iTunes sem ég kalla “Nano” eða eitthvað álíka og færi alla tónlistina sem ég vil hafa á Nanóinum yfir á þann lista. Svo tengi ég iPodinn og fer í iTunes - Preferences - iPod og vel þar “Update only selected playlists” og haka við “Nano” playlistann sem ég bjó til (líka reyndar gott að haka við “top 25 most played”). Eftir það, þá færast lögin sjálfkrafa af þeim playlista yfir á iPodinn í hvert skipti sem hann er tengdur. Muna bara að færa ný lög sem þér finnst flott yfir á Nano playlistann áður en þú tengir iPodinn aftur. :)