Já, þetta er Indigo Blue iMac frá 1997 eða 1998 (fékk mína 1998). Flott tölva og upphaf útlitsbyltingarinnar á heimilistölvum. Tákn upprisu Makkanns úr öskunni. :)
Það sem mig minnir að mín svona sé:
-233 MHz G3 örgjörvi
-32 MB RAM (Stækkanlegt í 256 MB)
-3.5 GB harður diskur
-16 MB ATI skjákort
Þú spilar ekki mikið af nýlegum leikjum á þessari… Reyndar kom mér á óvart að Unreal leikurinn fylgdi með fyrstu svona vélunum hérlendis og virkaði fínt (!).
Ef þú ert aðallega að spá í vél til þess að spila tölvuleiki, þá mæli ég með að þú náir þér frekar í nýlega Windows vél.
En ef þú ert mikið á netinu, þá mæli ég með Mac vél (ekkert spyware og vírusavesin).