1. Töff svartar buxur, kanski pínu víðar, hnepptum hvítum langermabol og svörtum undir, hvítt belti og hvítir támjóir skór. (Kanski ekki eins fínt og þú vilt hafa það, een…)
2. Svartar jakkafatabuxur (ekki teinóttar, nema þú endilega viljir), svartur langermabolur, hvít skyrta undir, hvítt belti og hvítir támjóir skór.
3. Svartar buxur, hvítur langermabolur, svart vesti yfir, svartir eða hvítir skór og belti í stíl.
4. Svartar buxur, hvít fráhneppt skyrta og svartur stuttermabolur innanundir, hvítir eða svartir skór og belti í stíl.
Hérna er ég með nokkur skotheld combo í svörtu og hvítu, er rosalega mikið að fíla hvítt belti og hvíta skó við um þessar mundir. Til að fá fleiri möguleika geturu auðvitað svissað alveg litunum í þessu, þ.e. t.d. með dæmi nr. 1 tekið þá hvítar jakkafatabuxur og sett á móti þeim hvítan bol undir og svartan hneptan yfir, og taka þá auðvitað svarta skó og svart belti.
Svartur og hvítur eru það skotheldir litir að þeir ganga alltaf, þessveggna var ég lítið að fara úti aðra liti, en þú skoðar það bara ef það er eitthvað sem þú vilt frekar ;)