Ekki góð…
Ég var með svipað sítt hár og þú þegar ég fékk mér mitt (fór reyndar held ég 3x til að halda þessu við).
EN allavega, þá stend ég uppi í dag með skraufaþurrt hár sem slitnar óverulega mikið. …Þó svo að ég hef notað djúpnæringu og það all, þá hefur það stoðað lítið.
Svo fékk ég alveg svakalegt hárlos, sem rekja má til permanettsins og er ég alveg að verða brjál.. á nýju hárunum sem uxu í staðinn og eru þ.a.l. mikið styttri en öll hin.
Svo vildi nú reyndar þannig til að í síðasta skiptið sem ég fékk mér permanett, þá fór ég til einhvers klaufa, sem bæði lét þetta leka ofan í hálsmálið á mér og skemmdi þ.a.l. 2 boli, þannig, ekki vera í einhverjum fínum bolum ef þú ferð til hennar, og svo lak í augun á mér. Það var eitt það versta helvíti sem ég hef lennt í. Hún kláraði bara að sprauta permanettinu í mig, og svo fór hún bara í mat. SVo finn ég bara hvernig droparnir byrja að leka sitthvoru megin, þannig að ég loka augunum og reyni að hreyfa hausinn eitthvað svo að þeir myndu e.t.v. leka framhjá. Neibb, það gerðist ekki heldur láku þeir beint í augun og það kom algjör svíðlogandi sviði og ég dofna öll upp og svo byrja tárin alveghreint að streyma. Haha svo kom gellan og leit á mig og hélt að ég ætti í einhverju þvílíku tilfinningalegu veseni og þorði ekki að segja orð við mig, það sem eftir var… en þar sem ég er ekki vön að bera tilfinningar mínar á torg, þá sagði ég henni ekkert frá þessu. Þetta leið hjá, en ég var samt pínu hrædd um að verða eitthvað sjónskert eftir þetta, því sjónin var nokkuð “blörruð” í svona 20 mín eftir.
…En já, þetta er mín slæma reynsla. Getur vel verið að einhver annar hefur eitthvað gott um þetta að segja, en ég efa það einhvernveginn.
Vona að þetta hafi verið eitthvað gagn :)
Það er enginn tilgangur með lífinu ….það ert þú sjálf/ur sem skapar hann