Það sem pirrar mig mest er bara það að meira að segja þótt hann hafi staðið úti í glugga eins og þú segir, sveiflað slátrinu og gert þyrluhljóð jafnvel, hvað með það? Hvers konar kelling er það sem getur ekki hlegið að því og haldið áfram að labba í stað þess að kæra manngreyið? Ekki eins og hann hafi verið að þröngva sér grimmilega uppá hana úti á götu, þá væri fyrst um sakavert athæfi að ræða.
Ohh, hvað ég er pirraður yfir hlutum sem koma mér ekkert við. Eða jú, hvaða maður vill ekki hafa frelsi til þess að hlaupa nakinn um á sínu eigin heimili og laga kaffi? Ætli þetta komi mér ekki óbeint við.