Ég er ekki að réttlæta eitt né neitt. Það sem ég er að segja er að það hjálpar ekki neitt að ætla fara í krossaferðir á móti þessum manni. Það að flýja af vettvangi útaf því að panikka sýnir að hann sé mannlegur. Mér finnst auðvitað að það ætti að sakfella manninn fyrir morð af gáleysi, en ég get samt alveg vorkennt manninum fyrir það. Þú verður að gera þér grein fyrir því að það eru ekki allir jafn gáfaðir og þú. Þótt að þú misþyrmir manninum þá mun það aldrei vera jafn vont og það sem hann er að fara í gegnum núna, það að hafa tekið líf fjögurra ára drengs. Ég efast um að það sé mjög létt að lifa við það að hafa gert þetta, og ÞESS vegna vorkenni ég manninum, auðvitað vorkenni ég líka fjölskyldu drengsins og aðstandendum en það á samt ekki að krossfesta manninn fyrir þetta. Þú lætur hljóma eins og hann hafi reynt að drepa hann, en þetta var slys! Ef þú skilur það ekki þá ertu ekki með þroska til þess!