Ég ákvað að fara með einum vini mínum í pottinn þar sem hann var búinn að væla síðan í gær um að ég myndi drulla mér í pottinn.

Það er skítkalt og rok hér á Bifröst og heitari potturinn[það eru 2] var álíka kaldur og kaldari potturinn ef ekki kaldari.
Kaldari potturinn er svona sem maður er í sumrin þegar manni er drulluheit og er að sleikja sólina, en það er ekki lengur hægt að sleikja sólina þarna þar sem það var sett bygging fyrir sólina :(

Síðan prófuðum við að fara í hinn pottinn athuga hvort hann gæti nú verið heitari[ég hef einu sinni lent í því að kaldari potturinn sé heitari en heiti potturinn] en svo var ekki sá pottur var skítkaldur.

Ég sem var búinn að vera kvefaður í 2 vikur og dagurinn í dag var nánast án hósta og hnerra og mikils horlekanda þá asnaðist ég til að fara í pottinn og núna er akkúrat eins og ég var fyrir 2 dögum bara núna er ég líka með smá hita, samt ekkert mikinn.

En það sem var mesti asnaskapurinn var að við vorum í keppni hvor gæti verið í kaldari pottinum lengur og hún var hátt í hálftíma en þá ákváðum við að hætta áður en við yrðum alvarlega veikir.

Og síðan þegar við vorum búnir að vera í aðeins meira en klukkutíma í pottinum þá sagðist ég ætla að fara áður en ég myndi frjósa í hel og fór í HEITA sturtu sem var helvíti gott.

My note to you ekki fara í “heitann” pott í skítaveðri það veit ekki á gott.

Og 3 spurningar í lokin.

1. Last Song Played?
2. Now Playing?
3. Next Song Played?

Mín svör.

1. Seven Seas Of Rhye - Queen
2. Smoke On The Water - Deep Purple
3. Hvar er draumurinn - Sálin Hans Jóns Míns