Vá hvað ég hata vetur. Ég vildi að það væri ekki vetur. Of kalt og of mikill snjór og ís og þegar það snjóar ekki þá er svo þurrt og ógeðslegt.
Og vá hvað ég hata sumar. Of mikið af skordýrum og of heitt og of mikið af frjókornum og of þurrt ef það er ekki þessi örlitla rigning sem kemur alltaf.
Og vá hvað ég hata Haust! Alltof þurrt og sólin skín alltaf innum gluggann hjá mér þegar hún er að fara að setjast og truflar mig og ennþá of mikið af skordýrum!
Og vá hvað ég hata vor! Of mikið af FOKKINGS frjókornum.
Ég vildi að það væri bara fimm tsiga hiti og þykk þoka allan ársins hring.