Hvernig er best að jafna sig á, kalla það ekki sambandsslit, en svona bara jafnvel ástarsorg? Ég fékk stopp merkið frá einni stelpu sem ég var svo hrifinn af að engin orð hafa nógu víðtæka merkingu yfir hrifningu mína. Það má til gamans geta að það að skrifa þetta hjálpar smá. Þetta er í fyrsta skiptið sem þetta gerist fyrir mig, enda eina stelpan sem ég tel mig hafa verið ástfanginn af. Er ég eitthvað afbrigðilegur að vera svona verulega þunglyndur eftir þetta, ég meina, ég fékk varla bragð...