Ég er í smá flækju sem ég vil helst leysa og fá einhver góð ráð við

Þetta byrjaði allt fyrir um það bil einum og hálfum mánuði síðan þegar nýr strákur byrjaði að vinna með mér. Við lentum oft saman í kaffi og náðum nokkuð vel saman. Eftir soldin tíma byrjuðum við að tala saman utan vinnunar, svona á msn og í síma, einnig hittumst við nokkrum sinnum utan vinnunar. Alltaf þegar við töluðum saman þá var alltaf soldið “flirt” á milli okkar, bæði frá mér og frá honum. Ég er núna orðin mjög hrifin af honum og líkar mjög vel hann og ef ég hef lesið hann rétt þá er hann að sama sinni.
Núna fyrir sotlu þá var ég að passa, þegar hann hringdi í mig og spurði hvort ég vildi koma að gera eitthvað, þegar ég nefndi að ég væri að passa þá spurði hann hvort hann mætti líta við, ég var að passa alla nóttina og auðvitað leifði ég honum að líta við.
Hann kom svo um eitt leitið og við fórum að horfa á eina mynd og nokkra af okkar uppáhalds þáttum, meðan við horfðum á þetta þá lágum við saman og kúrðum upp að hvor öðru og héldum utan um hvort annað.
Eftir soldinn tíma þá snérum við að hvort öðru og töluðum soldið saman, allt í einu þá kom hann nær mér og kyssti mig og auðvitað tók ég á móti, þetta gekk í soldin tíma með tilheirandi þukli og strokum. Mig minnir að hann hafi veið hjá mér til um 6.

Ég ætla að taka það fram að hann er 18 ára og ég 16 ára. Mín spurning er sú hvort það sé í lagi með aldursmuninn og hvort það sé í lagi að við vinnum saman?