Jæja jæja jæja. Mig langar aðeins að tjá mig um uppáhalds sápuna mína, Bold and the beautiful. Þessir þættir finnst mér bara hreinasta snilld, þó að þetta sé frekar líkt Guiding Light, svona fyrst þegar maður sér þetta. Það sem mér fannst skemma þættina, eða varla skemma þá, heldur skemma fyrir mér, var til dæmis : Þegar Brooke fór að vera svona mikið áberandi. Fyrst eignaðist hún tvö börn með Eric Forrester, svo giftist hún Ridge Forrester, syni Erics, og svo fór hún að dúlla sér eitthvað...