Þetta er eðlileg hegðun hjá köttum, sérstaklega að hvæsa og urra á aðra ketti. En að urra og hvæsa á fólk er kannski síður algengara. Kannski einhver manneskja hefur gert henni eitthvað, eða að hún er bara svona heimakær, vill ekki að annar komi inn á heimili hennar. Mamma átti læðu (bjó út í sveit) sem varð alveg tryllt ef hundarnir frá nágrannabæjunum komu. Hún elti þá alltaf langt út á veg, og þeir voru alltaf skíthræddir við hana.