Jamm, dyraverðir tóku máske frekar vægt á skilríkjum, en hitt er annað mál að Dillon var einn af fáum stöðum þar sem maður gat vænst þess að heyra góða tónlist. Led Zeppelin eru ekki spilaðir á hvaða stað sem er á föstudagskvöldum, en Dillon var einn af þeim. En nú virðist það vera liðin tíð, en það verður spennandi að sjá hvernig nýju stefnunni reiðir af. Hætta fastagestir að láta sjá sig, eða verður þetta eins og Opus? Fylgist með í næsta þætti bílastæðavarðanna…