Einu sinni var bara ekki neitt í þessu nestisboxi, en að liðnum fimm mínútum mun það verða yfir fullt af líkamsvessum Bernharðs, sem ekki sá sér fært að losa sig við vessa sína ofan í vaskinn eða baðkarið og greip því það sem hendi var næst, þ.e. nestisboxið sem, eins og áður kom fram, var tómt. Hann tók það fram og kastaði upp margra lítra magni af blóði og annars konar vökvum ofan í nestisboxið, sem og út fyrir það. Nestisboxið var nú alveg yfir sig fullt af líkamsvessum í öllum regnbogans...