Hvað ertu að tala um?
Einhver náungi segir:
“Því miður fór tónlist Svartadauða fáranlega mikið framhjá mér því ég var alls ekki að búast við svona ”gg allen stælum“.”
Þá kemur einhver annar, að reyna að vera pro:
“Þú varst á Svartadauða tónleikum og þú bjóst ekki við GG allin stælum? Þú, herra, ert hálfviti.”
Hann gerir sér ekki grein fyrir því að hugsanlega hefur náunginn ekki vitað af þeim, svo ég ákveð að reyna að leiðrétta hann.
“Bíddu… Ertu að reyna að hljóma eitthvað ”pro“ með því að orða þetta svona? (Þú, herra, ert hálfviti.)
Ef þú gerðir þér grein fyrir hlutunum, myndirðu fatta að hann hefur ekki heyrt um Svarta Dauða áður og bjóst ekki við þessu.”
Hm? Var ég að rífa mig?
Fer þetta mjög fyrir brjóstið á sumum meðlimum Svartadauða?