Var aðeins að leika mér … ég held að þetta sé nokkuð klassískt portrait.
Takið eftir því hvar vinstra augað (hægramegin á myndinni) á honum er, og hvernig það er nokkurnvegin í skurðpunkti þriðjungalínanna, og er þannig nokkurnvegin aðalatriði í myndinni.
Lýsingin er sólarljós í gegnum glugga, og var eiginlega bara heppni.
EOS 350d og helvítis 18-55 mm kit linsan … er ekki ennþá kominn með betri linsu í því sviði, en ég fæ vonandi 24-70 mm f/2.8 L eftir svona 2 vikur \o/ Húrra.