ÓSKARINN - OKKAR SPÁ
BESTA MYND ÁRSINS
The Artist
The Descendants
Extremely Loud & Incredibly Close
The Help
Hugo
Midnight In Paris
Moneyball
The Tree Of Life
War Horse
sabbath: Helsta samkeppnin er á milli kvikmyndanna sem eru
eitt stórt ástarbréf til kvikmynda: Hugo og The Artist. Þó mér
fannst Hugo vera betri er líklegast að The Artist tekur þetta.
Rosebud: ég er sammála með sabbath að Hugo og The Artist verði
annaðhvort
sigurvegarinn í ár.
BESTA LEIKSTJÓRN
Alexander Payne - The Descendants
Martin Scorsese - Hugo
Michael Hazanavicius - The Artist
Terrence Malick - The Tree Of Life
Woody Allen - Midnight In Paris
sabbath: Líklegast Hazanavicius, en miðað við að Scorsese
vann fyrir leikstjórn á Golden Globes þá er möguleiki á því líka.
Rosebud: ég segi Scorsese eða Malick vinni í ár.
BESTI LEIKARI Í AÐALHLUTVERKI
Brad Pitt - Moneyball
Demián Bichir - Another Year
Gary Oldman - Tinker Tailor Soldier Spy
George Clooney - The Descendants
Jean Dujardin - The Artist
sabbath: Jean Dujardin, þó ég mundi ekki kvarta yfir George
Clooney.
Rosebud: Jean Dujardin, væri ekki hissa að Clooneyinn
vinni.
BESTA LEIKKONA Í AÐALHLUTVERKI
Glenn Close - Albert Nobbs
Meryl Streep - The Iron Lady
Michelle Williams - My Week With Marilyn
Rooney Mara - The Girl With The Dragon Tattoo
Viola Davis - The Help
sabbath: Samkeppnin á milli Williams, Davis og Streep hefur
verið hörð en þar sem ég tek mikið mark á Screeen Actors Guild
(ennþá
að bíða eftir því að þeir endurnefna þetta Film Actors Guild) þá
tel ég að Davis vinni í ár.
Rosebud: Meryl Streep fær öruggulega verðlaunin, en ég vona
að Davis myndi
vinna.
BESTI LEIKARI Í AUKAHLUTVERKI
Christopher Plummer - Beginners
Jonah Hill - Moneyball
Kenneth Branagh - My Week With Marilyn
Max von Sydow - Extremely Loud & Incredibly Close
Nick Nolte - Warrior
sabbath: Bömmer að Albert Brooks var ekki tilnefndur. Og
æðislegt að Jonah Hill, sem "rúnkaði" sér yfir Emma Stone, er
tilnefndur. Christopher Plummer
Rosebud: Christopher Plummer
BESTA LEIKKONA Í AUKAHLUTVERKI
Bérénice Bejo - The Artist
Janet McTeer - Albert Nobbs
Jessica Chastain - The Help
Melissa McCarthy - Bridesmaids
Octavia Spencer - The Help
sabbath: Octavia Spencer. Það eru frekar stórar líkur á því
að það verða tveir svartir kvenmenn sem munu fá leikarastyttur.
Gerist ekki oft.
PS: Finnst einhverjum öðrum að Jessica Chastain og Brad Pitt voru
tilnefnd fyrir ranga mynd?
Rosebud: Octavia Spencer var ein af hápunktur myndinnar. svo
ég er rétt að vona
að hún vinni í ár.
BESTA FRUMSAMDA HANDRIT
The Artist - Michael Hazanavicius
Bridesmaids - Annie Mumolo & Kristen Wiig
Margin Call - J.C. Chandor
Midnight In Paris - Woody Allen
A Separation - Asghar Farhadi
sabbath: The Artist tilnefnd fyrir handrit? Spes. Woody
Allen tekur þetta.
Rosebud: A Separation, án efa.
BESTA HANDRIT BYGGT Á ÁÐUR ÚTGEFNU EFNI
The Descendants - Alexander Payne, Nat Faxon & Jim Rash
Hugo - John Logan
The Ides Of March - George Clooney, Grant Heslov & Beau Williom
Moneyball - Steven Zaillian & Aaron Sorkin
Tinker Tailor Soldier Spy - Bridget O'Connor & Peter Straughan
sabbath: The Descendants hefur mestu líkurnar á þessu tel
ég.
Rosebud: The Descendants
BESTA TEIKNIMYND ÁRSINS
A Cat In Paris - Alain Gagnol & Jean-Loup Felicioli
Chico & Rita - Fernando Trueba & Javier Mariscal
Kung Fu Panda 2 - Jennifer Yuh Nelson
Puss In Boots - Chris Miller
Rango - Gore Verbinski
sabbath: Óskar, hafið þið eitthvað á móti Bangsímon og
Tinna. Eins ofmetin ég mér finnst hún vera þá mun Rango vinna.
Rosebud: ég verð að vera sammála með sabbath, þetta er
frekar vandræðilegt.
en ég held að Rango myndi vinna.
BESTA MYND Á ERLENDRI TUNGU
Bullhead (Belgía) - Leikstjóri: Michael R. Roskham
Footnote (Ísrael) - Leikstjóri: Joseph Cedar
In Darkness (Pólland) - Leikstjóri: Agnieszka Holland
Monsieur Lazhar (Kanada) - Leikstjóri: Philippe Falardeau
A Separation (Íran) - Leikstjóri: Asghar Farhadi
sabbath: A Separation, það fyrirsjáanlegasta af öllu.
PS: Vantar The Skin I Live In (Rosebud: sammála)
Rosebud: auðvitað A Separation
BESTA MYNDATAKA
The Artist - Guillaume Schiffman
The Girl With The Dragon Tattoo - Jeff Cronenweth
Hugo - Robert Richardson
The Tree Of Life - Emmanuel Lubezki
War Horse - Janusz Kamisnki
sabbath: Jafnvel þótt þú hataðir The Tree Of Life er erfitt
að neita því að kvikmyndatakan var stórkostleg.
Rosebud: The Tree of Life, trúi ekki öðru.
BESTA KLIPPING
The Artist - Anne-Sophie Bion & Michael Hazanavivius
The Descendant - Kevin Tent
The Girl With The Dragon Tattoo - Kirk Baxter & Angus Wall
Hugo - Thelma Schoonmaker
Moneyball - Christopher Tellefsen
sabbath: Hugo.
Rosebud: The Girl With The Dragon Tattoo
BESTA FÖRÐUN
Albert Nobbs - Martial Corneville, Lynn Johnston & Matthew W.
Mungle
Harry Potter And The Deathly Hallows: Part 2 - Nick Dudman,
Amanda Knight & Lisa Tomblin
The Iron Lady - Mark Coulier & J. Roy Helland
sabbath: Er spurning að þetta verði það eina sem Potter
seríuna mun vinna á þessari hátið?
Rosebud: The Iron Lady
BESTA BÚNINGAHÖNNUN
Anonymous - Lisy Christl
The Artist - Mark Bridges
Hugo - Sandy Powell
Jane Eyre - Michael O'Conner
W.E - Arianne Phillips
sabbath: The Artist þó mér sjálfur fannst hún betri í
Hugo
Rosebud: The Artist
BESTA LISTRÆNA STJÓRNUN
The Artist - Laurence Bennett & Robert Gould
Harry Potter And The Deathly Hallows Part 2 - Stuart Craig &
Stephenie McMillan
Hugo - Dante Ferretti & Frecesca Lo Schiavo
Midnight In Paris - Anne Seibel & Héléne Dubreuil
War Horse - Rick Carter & Lee Sandales
sabbath: Hugo. Útlitið var stórkostlegt
Rosebud: Hugo
BESTU TÆKNIBRELLUR
Harry Potter And The Deathly Hallows: Part 2 - Tim Burke, David
Vickery, Greg Butler & John Richardson
Hugo - Rob Legato, Joss Williams, Ben Grossman & Alex Henning
Real Steel - Erik Nash, Josh Rosengrant, Dan Taylor & Swen
Gillberg
Rise Of The Planet Of The Apes - Joe Letteri, Dan Lemmon, R.
Christopher White & Daniel Barrett
Transformers: Dark Of The Moon - Scott Farrar, Scott Benza,
Matthew Butler & John Frazier
sabbath: Hefði sagt The Tree Of Life, en þar sem hún er ekki
tilnefnd: ROTPOTA
Rosebud: Hugo, myndi ég segja
BESTA TÓNLIST
The Adventures Of Tintin - John Williams
The Artist - Ludovic Bource
Hugo - Howard Shore
Tinker Tailor Soldier Spy - Alberto Iglesias
War Horse - John Williams
sabbath: The Artist, tónlistin passaði fullkomlega.
Rosebud: The Artist.
BESTA FRUMSAMDA LAG
Man Or Muppet - The Muppets - Bret McKenzie
Real In Rio - Rio - Sergio Mendes, Carlinhos Brown/Siedah
Garret
sabbath: Man Or Muppet
Rosebud: sem mikill Fight of the conchords aðdáðandi, ég
vona Man or
Muppet myndi vinna.
BESTA HLJÓÐBLÖNDUN
The Girl With The Dragon Tattoo - David Parker, Michael
Semanick, Ren Klyce & Bo Persson
Hugo - Tom Fleishman & John Midgley
Moneyball - Deb Adair, Ron Bochar, David Giammarco & Ed Novick
Transformers: Dark Of The Moon - Gerg P. Russel, Gary Summers,
Jeffrey J. Haboush & Peter J. Devlin
War Horse - Gary Rydstrom, Andy Nelson, Tom Johnson & Stuart
Wilson
sabbath: Hugo hljómaði mjög vel
Rosebud: öhm, já.. Hugo.
BESTA HLJÓÐIÐ
Drive - Lon Bender & Victor Ray Ennis
The Girl With The Dragon Tattoo - Ren Klyce
Hugo - Philip Stockton & Eugene Gearty
Transformers: Dark Of The Moon - Ethan Van der Ryn & Erik
Aadahl
War Horse - Richard Hymns & Gary Rydstrom
sabbath: Nei sko. Drive var tilnefnd fyrir eitthvað. Miðað
við alla vinnuna þegar kom að hestinum tel ég að War Horse vinni.
Rosebud: Drive.
STÆRSTA SNUB ÁRSINS
sabbath: Hundleiðinlegt að Warrior og Drive eru eina
tilnefningu hver og Shame hefur ekki neitt. Tintin og Winnie The
Pooh eru ekki í teiknimyndunum. Samt sem áður er margt óvænt sem ég
er ánægður með, t.d. The Tree Of Life og Bridesmaids
Rosebud: Það er ömurlegt að Drive fær ekki meira
tilnefningu, og Shame fékk
ekkert. Sérstaktlega fyrir að, Extremely Loud & Incredibly Close
fékk tilnefningu fyrir
besta mynd, en hún fékk 45% á Rotten Tomatoes. ég meina, voddafokk.
Kvikmynd vikunnar að þessu sinni er...
Contraband (2012)
Nýjasta mynd Baltasars Kormáks með Mark Wahlberg, Kate Beckinsale
og Giovanni Ribisi í aðalhlutverki.
Endurgerð af íslensku 2007 myndinni Reykjavík-Rotterdam.
Kemur út á Íslandi 20. janúar
align="center">Kvikmynd
vikunnar að
þessu sinni er...
Tree of Life (2011)
Jack: [voice over] Brother. Keep us. Guide us. To the end
of time.
Terrence Malick er guð, punktur.
-
Kvikmynd vikunnar að þessu sinni (22.07-29.07) er...
The Bad Lieutenant: Port of Call - New Orleans (2009)
Terence McDonagh: You think fish have dreams?
Nicolas cage, Bad lieutenant. þessi mynd er alveg hreynt frábær og
sýnir vel hvað Nic
Cage getur verið æðislegur leikari.
þessi mynd er endurgerð af myndinni Bad Lieutenant frá árinu 1992
með Harvey Keitel í
aðalhlutverki, en þær eru samt frekar ólíkar.
mér persónulega finnst þessi miklu betri, í leikstjórn werner
herzogs sem hefur jú gert
nokkrar mjög áhugaverðar myndir í gegnum tíðina.
Ég mæli með að þið tékkið á þessari mynd ef þið hafið ekki gert það
nú þegar.
þessi mynd fjallar um lögreglumanninn Terance McDonagh. hann er
góður
lögreglumaður sem lendir í slysi við að bjarga manni. hann er með
skemmt bak og er því
með stanslausa nýstandi bakverki. út af þessu fer hann út í
verkjalyf sem læknirinn gefur
honum, en það er ekki nóg fyrir hann. svo hann veltist um í
kókaíni, heróíni og alskonar
eyturlyfjum til að halda sér gangandi. allt þetta gerir hann ásamt
því að vera að vinna
vinnuna sína vel.
Go Cage!
Kvikmynd vikunnar að þessu sinni (27.06-03.07) er...
Gigli(2003)
Larry Gigli: If by some fuckin' miracle long shot you
haven't heard of my
reputation let me tell you who the fuck I am! I am the fuckin'
Sultan of Slick, Sadie! I am
the rule of fuckin' cool! You wanna be a gangster? You wanna be a
thug? You sit at my
fuckin' feet and gather the pearls that emanate forth from me!
Because I'm the fuckin'
original, straight-first-foremost, pimp-mack, fuckin hustler,
original gangster's
gangster!
"
Þú hefur ekki lifað fyrr en þú hefur séð Gigli.
Kvikmynd vikunnar að þessu sinni (27.06-03.07) er...
The Bad Lieutenant: Port of Call - New Orleans (2009)
Terence McDonagh: You think fish have dreams?
Nicolas cage, Bad lieutenant. þessi mynd er alveg hreynt frábær og
sýnir vel hvað Nic
Cage getur verið æðislegur leikari.
þessi mynd er endurgerð af myndinni Bad Lieutenant frá árinu 1992
með Harvey Keitel í
aðalhlutverki, en þær eru samt frekar ólíkar.
mér persónulega finnst þessi miklu betri, í leikstjórn werner
herzogs sem hefur jú gert
nokkrar mjög áhugaverðar myndir í gegnum tíðina.
Ég mæli með að þið tékkið á þessari mynd ef þið hafið ekki gert það
nú þegar.
þessi mynd fjallar um lögreglumanninn Terance McDonagh. hann er
góður
lögreglumaður sem lendir í slysi við að bjarga manni. hann er með
skemmt bak og er því
með stanslausa nýstandi bakverki. út af þessu fer hann út í
verkjalyf sem læknirinn gefur
honum, en það er ekki nóg fyrir hann. svo hann veltist um í
kókaíni, heróíni og alskonar
eyturlyfjum til að halda sér gangandi. allt þetta gerir hann ásamt
því að vera að vinna
vinnuna sína vel.
Go Cage!
Kvikmynd vikunnar að þessu sinni (17.06-23.06) er...
In Bruges (2008)
Ray: "Prison... death... didn't matter. Because at least
in prison and at least in
death, you know, I wouldn't be in fuckin' Bruges."
In Bruges er svört grínmynd frá 2008 leikstýrð og skrifuð af Martin
McDonagh og Colin
Farrel, Brendan Gleeson og Ralph Fiennes fara með aðalhlutverk.
Gleeson og Farrel leika
Ken og Ray, leigumorðingjar frá Dublin sem eru sendnir til Bruges
af stjóranum þeirra
Harry, leikinn af Fiennes. Ray fer að líta á öðruvísi á líf sitt og
komast þeir báðir til
skilmála með sektarkennd og siðferði.
Með WALL-E er þetta uppáhalds myndin mín frá 2008. Með The Big
Lebowki er In Bruges
með eitt best samda handrit í grínmynd sem notar mikið af blóti.
Húmorinn er súr,
random (They're filming midgets), hnyttinn, falinn og aldrei of
langt í hann). En á sama
tíma er þetta mjög mannleg saga um mann sem hefur ótrúlega mikla
sektarkennd og
byrjar spyrja út í siðferði sitt og samstarfsmann hans sem byrjar
að hugsa út í líf sitt.
Útlitið er líka frábært, Bruges passar fullkomlega við þessa mynd
en hún er aldrei notuð
sem auglýsing. Maður klárar ekki myndina og hugsar að þetta var ein
stór auglýsing af
bænum. Spennan er líka góð, leikurinn er frábær (Farrel fékk Golden
Globe fyrir leik sinn)
og handritið er með þeim bestu sem ég hef séð í grínmynd.
PS: Brendan Gleeson lék Alastor Moody, Ralph Fiennes lék Voldemort
og Clémence Poésy
(sem leikur Chloe í myndinni) lék Fleur Delacour í Harry Potter And
The Goblet Of Fire og
Deathly Hallows: Part 1. Það eina sem vantaði voru Warwick Davis að
leika dverginn sem
er í myndinni og Ray leikinn af t.d. David Tennant og þetta hefði
verið eitt stórt Harry
Potter reunion.
Kvikmynd vikunnar að þessu sinni (14.03-21.03) er...
Son of the Mask (2005)
Richard Roeper (At The Movies) "This is the closest I've
ever come to walking
out halfway through the film, and now that I've looked back on the
experience I wish I
had."
Son of the Mask er “kvikmynd” skrifuð af Lance Khazei, leikstýrð af
Lawrence Guterman
og er leikin af Jamie Kennedy, Alan Cumming og Traylor Howard.
Myndin gerist 10
árum eftir fyrstu myndina (The Mask) og fjallar um hjónin Tonya og
Tim Avery. Tim
finnur grímu Loka sem gefur kraft Grímunnar. Tim sefur hjá konunni
sinni með
grímuna á sér og verður Tonya ólétt eftir það, og fæðir hún níu
mánuðum síðar barn
með kraft Grímunnar (af einhverjum ástæðum). Á meðan er Loki að
leita bæði af
grímunni og barninu.
Af öllum myndum sem ég hef séð er þetta sú ALLRA VERSTA. Allt sem
einkenndi fyrstu
myndina, svo sem góðar frammistöður, góður húmor en samt smávegis
af myrkum
söguþræði er horfið. Ég glotti einu sinni yfir myndina. Annars
einkennist myndin mest
af hræðilega barnalegum húmor, tölvubrellur sem eru oftast
hræðilegar, leikurum sem
áttu miklu betur skilið.Hvernig gátu leikarar á borð við Alan
Cumming, Jamie Kennedy
og Bob Hoskins samþykkt að vera í þessum skít? Gríman lítur þar að
auki verri út
heldur en sú upprunalega.
Allar framhaldsmyndir frá Jim Carrey myndum sem hann var
ekki í (Þessi,
Dumb and Dumberer, Evan Almighty og Ace Ventura Jr.) eru slæmar en
þeir höfðu að
minnsta kosti eitthvað gott við þær. Ég hata þessa mynd og sé
alltaf eftir því að hafa
séð hana.
ÓSKARINN - OKKAR SPÁ
BESTA MYND ÁRSINS
127 Hours
Black Swan
The Fighter
Inception
The Kids Are All Right
The King's Speech
The Social Network
Toy Story 3
True Grit
Winter's Bone
sabbath: Það eru um 90 % líkur á því að annað hvort The
King's Speech eða
The Social Network vinni bestu mynd. Ég kýs TSN.
Rosebud: Ég segi að The Social Network mun vinna.
BESTA LEIKSTJÓRN
Darren Aronofsky - Black Swan
Ethan Coen, Joel Coen - True Grit
David Fincher - The Social Network
Tom Hooper - The King´s Speech
David O. Russell - The Fighter
sabbath: Getur einhver mótmælt því að það sé kominn tími til
að Fincher fái
loksins styttuna? Svar við Rosebud: Fannst Debra Granik frekar eiga
skilið tilnefningu,
þó Nolan var betri en Coen-bræðurnir.
Rosebud: Darren Aronofsky eða David Fincher, en ég held að
Fincher vinni.
p.s. finnst ykkur Nolan átti skilið tilnefningu?
BESTI LEIKARI Í AÐALHLUTVERKI
Javier Bardem - Biutiful
Jeff Bridges - True Grit
Jesse Eisenberg - The Social Network
Colin Firth - The King´s Speech
James Franco - 127 Hours
sabbath: Jeff Bridges vann í fyrra á móti Colin Firth. Þetta
verður öfugt á
þessu ári.
Rosebud: Colin Firth eða Jesse Eisenberg, þó að ég elska
Bridges
BESTA LEIKKONA Í AÐALHLUTVERKI
Annette Bening - The Kids Are All Right
Nicole Kidman - Rabbit Hole
Jennifer Lawrence - Winter´s Bone
Natalie Portman - Black Swan
Michelle Williams - Blue Valentine
sabbath: Portman, ekki spurning.
Rosebud: PORTMAN!!!!
BESTI LEIKARI Í AUKAHLUTVERKI
Christian Bale - The Fighter
John Hawkes - Winter´s Bone
Jeremy Renner - The Town
Mark Ruffalo - The Kids Are All Right
Geoffrey Rush - The King's Speech
sabbath: Ekki svalt að hvorki Timerlake né Garfield séu
þarna. Skýt á
Bale.
Rosebud: Sammála sabbath með Timburlækur og Grettir, Annars
myndi ég
segja Bale eða John Hawkes
BESTA LEIKKONA Í AUKAHLUTVERKI
Amy Adams - The Fighter
Helena Bonham Carter - The King's Speech
Melissa Leo - The Fighter
Hailee Steinfeld - True Grit
Jacki Weaver - Animal Kingdom
sabbath: Paramount eru orðnir að sell-outi fyrir setja
Hailee Steinfeld í
aukahlutverk, bara svo að það væri líklegra að hún fengi
tilnefningu. Melissa Leo.
Rosebud: Hailee Steinfeld, hún ownaði myndina.
BESTA FRUMSAMDA HANDRIT
Another Year - Mike Leigh
The Fighter - Scott Silver, Paul Tamasy, Eric Johnson
Inception - Christopher Nolan, Jonathan Nolan
The Kids Are All Right - Lisa Cholodenko, Stuart Blumberg
The King´s Speech - David Seidler
sabbath: Sorry, Nolan-bræður, en David Seidler kom með betra
handrit.
Rosebud: Ég vill að segja Inception, en ég held að The
King's Speech mun
vinna
BESTA HANDRIT BYGGT Á ÁÐUR ÚTGEFNU EFNI
127 Hours - Danny Boyle, Simon Beaufoy
Toy Story 3 - Michael Arndt, John Lasseter, Andrew Stanton, Lee
Unkrich
The Social Network - Aaron Sorkin
True Grit - Joel Coen, Ethan Coen
Winter´s Bone - Debra Granik, Anne Roselinni
sabbath: Handritstilnefningarnar eru eingöngu bestu
myndirnar - Black Swan
+ Another Year. Bömmer. The Social Network vinnur þetta. Ég missi
allt álit á
Óskarnum ef Sorkin vinnur
ekki.
Rosebud: The Social Network.
BESTA TEIKNIMYND ÁRSINS
How To Train Your Dragon
L'illusioniste
Toy Story 3
sabbath: Af hverju bara 3 tilnefningar? Tangled átti vel
skilið að vera tilnefnd.
Toy Story 3 sigar þetta líklegast.
Rosebud: TS3, hvað annað?
BESTA MYND Á ERLENDRI TUNGU
Biutiful (Mexíkó)
Kynodontas (Grikkland)
Hævnen (Danmörk)
Incendies (Kanada)
Hors-La-Loi (Algería)
sabbath: Hef reyndar ekki séð neina en tel líklegast að
Biutiful taki þetta.
Rosebud: hef ekki séð neina af þessu, en eftir Hævnen vann á
Golden Globes
og myndin er frá Susanne Bier, þá er það frekar líklegt að hún
vinni
BESTA MYNDATAKA
Black Swan - Mattew Libatique
Inception - Wally Pfister
The King's Speech - Danny Cohen
The Social Network - Jeff Cronenweth
True Grit - Roger Deakins
sabbath: Black Swan.
Rosebud: Svartur Svanur
BESTA KLIPPING
127 Hours
Black Swan
The Fighter
The King´s Speech
The Social Network
sabbath: The Social Network.
Rosebud: Soical Network
BESTA FÖRÐUN
Barney´s Version
The Way Back
The Wolfman
sabbath: The Wolfman
Rosebud: Eina almennlega förðunin, Wolfman (samt hörmuleg
mynd)
BESTA BÚNINGAHÖNNUN
Alice in Wonderland
Io Sono l´amore
The King´s Speech
The Tempest
True Grit
sabbath: The King's Speech.
Rosebud: Konungsræðan
BESTA LISTRÆNA STJÓRNUN
Alice in Wonderland
Harry Potter and the Deathly Hallows: Part 1
Inception
The King´s Speech
True Grit
sabbath: The King's Speech.
Rosebud: Inception
BESTU TÆKNIBRELLUR
Alice in Wonderland
Harry Potter and the Deathly Hallows: Part 1
Hereafter
Inception
Iron Man 2
sabbath: Ekki The Social Network, Tron Legacy eða Scott
Pilgrim Vs. The
World? Inception vinnur þetta annars.
Rosebud: Tilnefningar fyrir tæknibrellurnar í ár er frekar
fáránlegur, en ég
segi Inception (eina sem er varð í henni)
BESTA TÓNLIST
127 Hours
How to Train Your Dragon
Inception
The King´s Speech
The Social Network
sabbath: Ég virkilega tel að The Social Network eigi eftir
að hreppa
þetta.
Rosebud: The Social Network eða Inception, báðar virkilega
góðar
BESTA FRUMSAMDA LAG
127 Hours - "If I Rise"
Country Strong - "Coming Home"
Tangled - "I see the Light"
Toy Story 3 - "We belong together"
sabbath: Hef nær enga skoðun á þessu, tek bara We Belong
Together
Rosebud: TS3
BESTA HLJÓÐBLÖNDUN
Inception
The King's Speech
Salt
The Social Network
True Grit
sabbath: The Social Network.
Rosebud: The Social Network eða Inception
BESTA HLJÓÐIÐ
Inception
Toy Story 3
Tron Legacy
True Grit
Unstoppable
sabbath: Inception.
Rosebud: Inception
STÆRSTA SNUB ÁRSINS
sabbath: Að Scott Pilgrim Vs. The World fékk ekki eina
einustu tilnefningu.
Að mínu mati átti hún vel skilið tilnefningu fyrir kvikmyndatöku,
klippingu, hljóð,
hljóðblöndu, tæknibrellur og áður útgefið handrit.
Rosebud: Ég er mjög sammála hjá sabbath, Scott Pilgrim átti
virkilega skilið
fyrir allan
tæknilega hlutann á óskarinn. Einnig var frekar leiðinlegt að C.
Nolan fékk ekki
tilnefningu fyrir Inception, því að mér fannst að myndin var ein af
betrum leikstýrðu
myndum í ár, miklu meira en The Fighter.
Kvikmynd vikunnar að þessu sinni (25.01-01.02) er...
Birdemic: Shock and Terror (2008)
Dr. Jones: It's the human species that needs to quit
playing cowboy with
nature. We must act more like astronauts, spacemen taking care of
Spaceship Earth.
Hvað í ósköpunum var ég að horfa á?
Birdemic er (ótrúlegt en satt) kvikmynd eftir hálf-víetmenska
kvikmyndagerðamanninn
James Nguyen. Hann skrifaði handritið, leikstýrði og framleiddi
myndina. Nguyen er
greinilega með mikla þráhyggju fyrir kvikmyndaleikstjóranum fræga
Alfred Hitchcock,
svo mikla að hann náði að nota Tippi Hedren (sem er einmitt fræg
fyrir hlutverk sitt í
The Birds) í fyrstu myndina sína. Og notaði klippur með henni í
hinar tvær myndirnar
sem hann gerði. Birdemic er þriðja myndin hans og hún var
greinilega undir miklum
áhrifum frá myndinni The Birds.
Hvað fjallar myndin um?
Rod er sölumaður í hugbúnaðafyrirtæki, allt er á góðri leið, nema
honum vantar konuna
í lífi sínu. En hann hittir draumastelpuna Nathalie sem hann hefur
verið ástfanginn af
síðan í framhaldsskóla, en þorði aldrei að bjóða henni út þá.
Nathalie er starfandi
fyrirsæta sem er nýbúin að fá gig frá Victorira's Secret. Þau fara
í stefnumót þar til að
þau sjá að ernir eru að gera innrás í heimabæinn þeirra. Þetta er
þeirra leið til þess að
lifa af.
Þessi mynd er ótrúleg. Það liggur við að The Room sé
Óskarverðlaunamynd miðað við
þessa. Handritið er gjörsamlega hræðilegt og er súperklisja.
Leikurinn hjá leikurunum
er sérstaklega slæmur. Klipping er virkilega til skammar (sumar
línurnar eru klipptar í
miðju samtali). En það allra versta við þessa mynd er hljóðið og
"tölvugrafíkin". Hljóðið
í myndinni er nú það allra versta sem ég hef heyrt í ævinni minni.
Það er eins og
leikstjóranum sé alvega sama um það. Það er virkilega vont að reyna
að heyra hvað eru
að segja í sumum atriðum myndarinnar. Ég held að leikstjórinn hafi
ekki einu sinni
notað "búm-mæk". Og svo "tölvugrafíkin" sem gerði myndina fræga.
Ernirnir er
augljósalega tölvugerðir, allt í lagi með það, en þetta er það
versta sem ég hef séð.
Þetta lítur eins og leikstjórinn hafi fundið rosalega "flottar" GIF
hreyfimyndir af
einhverri fræðslusíðu fyrir börn. Það var virkilega erfitt að horfa
á þessa mynd en
maður gat ekki hætt að horfa. Þetta var eins og að horfa á bílslys
í slo-mo..
P.S: Birdemic 2 er væntanleg á 3D, án gríns.
Kvikmynd vikunnar að þessu sinni (16.12 - 23.12) er...
Scott Pilgrim Vs. The World (2010)
Lucas Lee: The only thing separating me from her is the
two minutes it's
gonna take to kick your ass.
Þar sem myndin er nýkomin á DVD er tilvalið að hafa hana sem
kvikmynd
vikunnar.
Scott Pilgrim er leikstýrð af Edgar Wright, skrifuð af honum og
Michael Bacall (og
byggð á myndasögum eftir Bryan Lee O'Malley) og er leikin m.a. af
Michael Cera, Mary
Elixabeth Winstead, Kieran Culkin, Jason Schwartzman, Ellen Wong,
Alison Pill og Mark
Webber.
Scott Pilgrim (Michael Cera) er 22 ára atvinnulaus bassaleikari í
hljómsveitinni Sex Bob-
omb. Hann hefur aldrei náð að jafna sig fullkomlega eftir
sambandslit hans við
fyrrverandi kærustu hans þangað til hann hittir Ramona Flowers
(Mary Elizabeth
Winstead) sem hann byrjar með. En fljótlega uppgötvar hann að hann
þarf að sigra 7
fyrrverandi “exes” Ramonu til að vera með henni. Og á meðan er hann
að keppa í
hljómsveitakeppni með Sex Bob-omb þar sem plötusamningur við stórt
útgáfufyrirtæki
er í verðlaun.
Að mati undiritaða er þetta algjörlega skemmtilegasta mynd ársins.
Myndin er steikt,
fersk fyndin, brjáluð, hefur æðislega karaktera (og x-in ofleika
æðislega) og hefur ekki
neinn daufan punkt (fyrir utan smáatriði í endanum) út myndina.
Slagsmálaatriðin eru
mjög vel gerð, og gef ég myndinni góðan plús fyrir að nota
fjölhæfni, þau hefðu
auðveldlega getað verið einhæf. En innan við allt sem myndin hefur
þá hefur hún líka
mjög vel gerða þroskasögu sem kemst vel til skila. Michael Cera
hefur bæst mikið í
áliti hjá mér, en myndin Youth in Revolt kom líka út á þessu ári.
Edgar Wright sannar
með þessari mynd að hann er maðurinn þegar kemur að fyndnum,
steiktum myndum.
PS: Ég vil Lucas Lee mynd.
Kvikmynd vikunnar að þessu sinni (23.11 - 30.11) er...
Who framed Roger Rabbit (1988)
Eddie Valiant: You mean you could've taken your hand out
of that cuff at
any time?
Roger Rabbit: No, not at any time, only when it was funny.
Who framed Roger Rabbit var leikstýrð af Robert Zemeckis (Back
to the Future
þríleikurinn, Forrest Gump, The Polar Express) og Richard Williams
og fara Bob Hoskins
og Christopher Lloyd með aðalhlutverk og Charles Fleishcer og
Kathleen Turner með
aðalraddleik.
Myndin gerist í heimi þar sem teiknimyndapersónur (eða toons)
búa með
mannfólki og eru þau eingöngu í skemmtanabransanum. Einkaspæjarinn
Eddie Valiant
(Hoskins), sem hefur hatað toons síðan bróðir hans var drepinn af
einum þeirra, er
ráðinn af eiganda Maroon Cartoon Studios til að njósna um hvort
tonn-in, söngkonan
Jessica Rabbit, sé að halda framhjá eiginmanni sínum með eiganda
Toontown,
manneskjuna Acme. Eddie tekur myndir af þeim að spila patty-cake og
sýnir
eiginmanni Jessica, Roger, myndirnar og verður Roger brjálaður.
Daginn eftir er Acme
fundinn myrtur og er Roger sá sem er mest grunaður um morðið,
allavega samkvæmt
Judge Doom (Lloyd). Roger fer til Eddie til að biðja hann um hjálp
til að sanna sakleysi
sitt og til að finna erfðaskrá Acme áður en Toontown verður selt
til annars fyrirtækis.
Ekki eingöngu er Who Framed Roger Rabbit með betri teiknimyndum
sem ég hef
séð (en Toontown og allar teiknimyndapersónurnar eru teiknaðar inn
á filmuna) heldur
er hún líka með þeim frumlegustu. Húmorinn og film-noir fílingur
myndarinnar er
mjög vel gerður og sömuleiðis eru karakterarnir mjög sterkir.
Myndin var
byltingakennd á sínum tíma fyrir ótrúlega raunhæfa blöndu af live-
action og
hreyfimyndum. Þegar toon-in taka, færa eða snerta eitthvað hreyfist
það með þeim
eins og þau séu í rauninni þarna. Þetta er þar að auki eina myndin
sem maður sér bæði
Mickey Mouse og Bugs Bunny.
Vel mælanleg.
PS: Byrjað er að vinna við framhaldsmynd. Myndin hefur að
minnsta kosti sömu
höfunda og leikstjóra og hef ég heyrt að Bob Hoskins hefur sýnt
áhuga á að mæta
aftur.
Kvikmynd vikunnar að þessu sinni (07.10 - 14.10) er...
Unforgiven(1992)
Will Munny: All right, I'm coming out. Any man I see out
there, I'm gonna shoot
him. Any sumbitch takes a shot at me, I'm not only gonna kill him,
but I'm gonna kill
his wife, all his friends, and burn his damn house down.
Árið 1992 kom að því að Clint Eastwood sneri aftur til
vestrans, kvimyndanna sem
gerðu hann frægann. Og honum tókst svo vel upp, að þessi mynd er í
sama gæðaflokki
og The Godd, The Bad and The Ugly. Honum tekst hið ógerlega, hann
sannar að hann
er jafn svalur 62 ára og hann var þegar hann var 34 ára. Og
viðtökurnar sem hún fékk
voru eftir því. Hún vann helling af Óskarsverðlaunum árið 1992, þar
á meðal besta
myndin. Morgan Freeman Kemur sterkur inn sem félagi Clints og Gene
Hackman er
frábær sem óvinurinn. Þegar horft er á myndina getur maður vel
ímyndað sér að
William Munny sé nafnlausi maðurinn þegar hann er kominn á efri
árinÞessi mynd er
algert skylduáhorf fyrir alla sanna kvikmyndaáhugamenn.
Morgan Freeman og Clint Eastwood leika tvo fyrrverandi
glæpamenn sem hafa
horfið frá fyrra líferni. Þeir ákveða svo að taka að sér eitt starf
til viðbótar, vegna
peningaskorts. Í bænum Big Whiskey var hóra ein skorið eillilega,
og starfssystur
hennar ákveða að hefna sín á kúrekunum sem réðust á hana. Það sem
þeir vita ekki er
að Clint Eastwood ætlar sér að ná þeim...
/kvikmyndir kynna
RIFF 2010
Núna á þessari viku verður nú alþjóðleg kvikmyndahátíð í
Reykjavík, og tilefni
þess ætla ég (Rosebud) að skrifa gagnrýni af þeim myndum sem ég kem
til með að sjá,
og ég mun reyna að sjá sem flestar myndir sem sýndar eru á
hátíðinni.
Gagnrýnin
verða sett í þetta horn
_______________________________________________________________
____
Rosebud
Armadillo: Áhugaverð stríðsheimildamynd frá danmörku, sýndi
dökku hliðar
stríðsins í Afghanistan. Frekar fín mynd, en sýningin var ekki eins
góð, bilaði tvisvar og
leikstjórinn virðist ekki hafa nennt að mæta á Q&A. Armadillo: 3.5
/ 5
Submarino: Týpísk "lífið er erfitt" mynd frá danmörku, smá
diss í gangi en ég var
virkilega að fíla myndina. Afar eftirminnaleg mynd. 4.5 / 5
Bad Family: köldsvört finnskt gaman/dramamynd um afleiðingar
á hugsanlegan
sifjaspell,
eða fjölskyldufaðirinn heldur það. Frekar fyndin mynd. 3 / 5
Littlerock: Æi, ég veit ekki... mér fannst að ég væri að horfa
á lokaverkefni hjá
einhverjum kvikmyndaskólanema, sögurþráðurinn var svona "enginn
skilur mig" á
bókstaflega merkingu. 2 / 5
Symbol: ímyndaðu þér mynd um gaur sem innilokaður herbergi
fullt af
englatyppum(/eða hinnsta draumur MJ). Súper freaký mynd en hún var
æðisleg
skemmtileg. 4 / 5
Big Man Japan: Sami gaurinn og gerði symbol gerði aðeins
karlmannlegri mynd,
en það breytti engu... Þetta var ein af mesta WTF?! mynd sem ég hef
séð lengi. 4.5 / 5
_______________________________________________________________
_____
Þið getið líka sett inn Gagnrýni, eina sem
þið þurfið að gera er að senda mér einkaskilaboð.
Gagnrýnin verða að vera 2-5
setningar og hafa stjörnugjöf frá 0-5 (ekki nauðsyn).
Kvikmynd vikunnar að þessu sinni (13.09. - 20.09) er...
Þessi mynd af Rosebud (2010)
Rosebud: "Ég vill að fá sama klippingu og David Lynch þegar
ég verður
gamall"
Þessi frábæra mynd kom út í febrúar á þessu ári, og varð strax
að uppáhaldi kvikmyndagagnrýnenda út um allt land. Menn höfðu á orð
að þarna væri loksins komin íslensk mynd sem gæti sigrað heiminn,
og nú, 7 mánuðum síðar, eru vinsældir hennar ennþá ótrúlegar.
Hún var tekin í anda Stalíns, en Rósi er ansi líkur honum. Það
sést líka nokkuð greinilega að hann er sjóðheitur, og tók hann
nýlega framúr Taylor Lautner á imdb moviemeter. Endurgerð
myndarinnar í Bandaríkjunum er langt á veg komin, og hefur Wes
Anderson tekið að
sér að leikstýra henni.
og, hann er á lausu strákar...
~
Kvikmynd vikunnar að þessu sinni (7.08. - 14.08) er...
Wild At Heart (1990)
Sailor: "This is a snakeskin jacket! And for me it's a
symbol of my individuality, and my belief... in personal freedom."
Wild at Heart er leikstýrt af engum öðrum en David Lynch
sjálfum og skartar leikurunum Nicolas Cage og laura Dern í aðal
hlutverkum og fjallar um parið Sailor Ripley og Lula Fortune sem
vill ekkert annað en að fá að vera saman í friði, en mamma Lulu er
að gera þeim erfitt fyrir og ræður leigumorðingja til þess að kála
Sailor því að henni líkar bara alls ekkert vel við Sailor. Ég segji
ekkert meira frá smáatriðum í söguþræðinum. Þau hitta marga vægast
sagt sérstaka karaktera á leiðinni, m.a. Bobby Peru sem er leikinn
af Willem Dafoe og er hans karakter frekar nasty og gerir hann það
vel.
Wild At Heart er ein af mínum uppáhalds myndum-ever. stundum er
ég bara ekki frá því að mér finnist þetta vera besta myndin hans
David Lynch, frábærir leikarar(Nic Cage er svo fáránlega vanmetinn
leikari, hann er awesome) frábært handrit og visual atriði og
síðast en ekki síst er æðisleg tónlist í myndinni.
Ég mæli alveg ótrúlega mikið með því að tékka á Wild At Heart ef þú
hefur ekki enn gert það.
Kvikmynd vikunnar að þessu sinni (27.07. - 3.08) er...
Before Sunrise (1995) / Before Sunset (2004)
úr Sunset
Celine: Baby, you are gonna miss that plane.
Jesse: I know.
Before Sunrise: Einn kani og ein frönsk fara til Vínarborgar,
þau hafa aldrei hittst áður... en bara á þessum takmarkaða tíma
hafa þau talað um allskonar hluti, um lífið og dauðann, og þau
verða frekar inninleg við hvort annað.
Before Sunset: sami hluturinn nema 9 árum seinna. Vill ekki að
segja meira um hana.
Rómantískar myndir eru eitthvað sem ég er ekki sértaktlega
hrifinn sem kvikmyndagrein. Þær eru einskonar froða og frekar
væmnar. En myndirnar sem ég er að fjalla um núna eru virkilega
raunsæjar miðað við það sem Hollywood hefur að bjóða. Þó að ekkert
sé að gerast í myndinni, þá er fókus myndirnar aðallega á 2
persónum og áhugaverðum samræðum þeirra, ekkert aksjon í gangi en
manniþykir vænt um persónurnar sem verða gjörsamlega skotin þó að
þau vita að það muni aldrei að virka. En ég mæli með myndunum, plús
Ethan Hawke er svo fucking fiiiine...(Innskot frá þýðanda: WTF?)
Kvikmynd vikunnar að þessu sinni (12.07. - 19.07) er...
Rosemary's Baby (1968)
Rosemary: Awful things happen in every apartment house.
Ég var bara í góðum fíling að skrifa kvikmynd vikunnar þegar ég
sá að Röman Pölanski væri frjáls ferða sinna. Því fannst mér
upplagt að smella inn einni góðri frá þessum leikmanni sem hefur
ósjaldan verið á milli tanna fólks. Þess má geta að Rösmarys Bebi
er besta mynd hans, og hefur gjemlert bara gert tvær myndir sem eru
í sama gæðaflokki og þessi síðan þá.
Rósa og Guy eru nýbúin að kaupa sér íbúð og eru í nettu tjilli
í íbúðinni þegar undarlegir hlutir fara að gerast. Nágrannar hennar
fara að sýna skötuhjúunum mikinn áhuga, og þegar Rósa verður ólétt
er fjandinn laus(lol). Henni er nauðgað af kölska í draumi og
óléttan hefur ýmsar furðulegar aukaverkanir. Svo kemur rosa twist í
endann, og strax á eftir því ennþámeira twist, sem ég má eiginlega
ekki segja frá. En þessi mynd er frábær og er hún ennþá frábærari
ef þú horfi á The Omen strax á eftir, en það e voða svipaður
fílingur í þeim.
.... Rosebud mun skrifa kvikmynd vikunnar á morgun
Kvikmynd vikunnar að þessu sinni (28.06. - 05.07) er...
Lone Wolf & Cub (Shogun Assassin)
Ogami Itto: "They will pay... In rivers of blood!"
Lone Wolf & Cub fjallar um samúræjan Ogami Itto sem þjónaði
shogun
(nokkurskonar "general") sínum vel. en shoguninn fer að verða
paranoid og ákveður að
drepa alla sem honum finnst ógna veldi sínu. honum mislíkar
eitthvað hvernig
OgamiItto er að hegða sér, svo hann sendir ninjur heim til hans sem
eiga að drepa
hann. en það mistekst og honum tekst bara að drepa eiginkonu hans.
Ogami og sonur
hans daigoro komast af. núna er Ogami Itto sko reiður. hann og
sonur hans ákveða að
gerast Lone Wolf & Cub. og gera allt til þess að ná sér niður á
þessu fólki (já og btw.
Sonur hans, Daigoro er bara svo þriggja ára, svo að Ogami Itto þarf
að ferðast um með
hann í alveg frekar badass barnavagni.).
Lone Wolf & Cub eru í raun 7 myndir frá árunum 1970-1976. En
árið 1980 voru
fyrstu tvær myndirnar klipptar saman niður í heildina "Shogun
Assassin" og döbbaðar
yfir á ensku.
Flestir þekkja Shogun Assassin frá Kill Bill Vol.2, því þar
vitnar Tarantino í þessa
mynd.það er mjög augljóst að Tarantino hefur fengið mikinn
innblástur frá Lone Wolf &
Cub fyrir Kill Bill, Söguþráðurinn er mjöög svipaður, lúkkið á
myndunum er í svipuðum
stíl og svo eru það gore effektarnir sem eru bara alveg eins.
allavega eins og úr Kill Bill
1, blóðið spýtist svona útum allt á mjög ýktan hátt.
Ég mæli með því að reyna að koma höndum ykkar yfir þessar myndir.
helst að reyna að
sjá allar sjö Lone Wolf & Cub myndirnar frekar en að horfa á Shogun
Assassin, samt
skaltu horfa á hana líka. "LW&C" myndirnar gera sögunni bara miklu
meira justice en
"SA".
Kvikmynd vikunnar að þessu sinni (21.06. - 28.06) er...
Иди и смотри, eða Come and See (1985)
Ég fann ekki "kvót" úr myndinni ;c
Florya var spenntur fyrir því að þjóna landinu sínu, en
veruleikinn var ekki eins og
hann ímyndaði sér. Atburður sem hann lendir í, var meiri hryllingur
en hann gat hugsað
sér að upplifa.
Come and See er talin vera ein af merkilegustu stríðmyndum
allra tíma. Leikstjóri
myndinnar er ekki mjög þekktur utan heimalands síns. En allavega,
þegar ég var að
horfa myndina var það eina sem ég gat hugsað um hvað mynd var
rosaleg brútal og ég
átti erfitt með að horfa á sumar senurnar, og mér fannst ekkert mál
að horfa á
Antichrist. Come and See er óþægilegt (en satt) rússlenskt
sjónarhorn á seinni
heimstyrjöldinni, en hún er mikilvægt áhorf til að skilja hvernig
stríð getur breytt
manni til hins versta. Algjörlega ógleymanleg upplifun að sjá þessa
mynd, en ekki á
jákvæðum hátt
Kvikmynd vikunnar að þessu sinni (09.06. - 16.06) er...
Magnolia(1999)
Frank T.J. Mackey: In this life, it's not what you hope for,
it's not what you deserve - it's what you take!
Magnolia er þriðja mynd meistarans Paul Thomas Anderson, en
hann hefur meðal annars gert There Will Be Blood og Boogie Nights.
Anderson er líklega mest consistent leikstjóri dagsins í dag, en
hann hefur aldrei gert mynd sem er ekki meistaraverk. Hann hefur
verið nefndur sem konungur hins svokallaða "Ensemble Cast" ásamt
Robert Altman. Magnolia er í raun óður til Altmans og gæti þess
vegna heitið Short Cuts 2.
Annars er sagan allsráðandi í Magnolia, og í rauninni get ég
ekkert sagt frá henni án þess að spilla. Leikararnir í myndinni eru
þó fyrsta flokks og sýna margir hverjir stórleik. Tom Cruise setur
héraðsmet í því að vera góður leikari, og var óskarnum rænt af
honum þetta árið. John C. Reilly hefur aldrei verið betri og gömlu
brýnin Jason Robards og Philip Baker Hall eru frábærir sem
mennirnir tveir sem tengja sögurnar saman. Mæli fastlega með þessu
stórvirki.
Kvikmynd vikunnar að þessu sinni (11.05. - 18.05) er...
Mysterious Skin (2004)
Brian: The summer I was 8 years old, five hours disappeared from
my life. Five
hours. Lost. Gone without a trace.
Mysterious Skin er um ólika unglinga sem hafa lent í atburðum í
æsku þeirra sem
breyttu lífi þeirra til frambúðar.
Annar man allt, hinn man ekkert.
Myndin er erfið áhorfs, en hún er vel þess virði að horfa á
hana. Frammistaða
Joseph Gordon-Levitt (þið kannst við hann úr (500) Days of Summer)
er rosalegur í
þessari mynd, mér einfaldlega leið illa eftir að horfa á
brútalaðasta atriði myndinnar og
hvernig hann meðhöndlar áföllin er virkilega harmþrungið. Myndin er
bara frekar
harmþrungin.
Ég veit að það er ekki auðvelt að selja ykkur sorgalega mynd,
en hún er virkilega
góð. Maður fær hana á heilann og fær maður að hugsa um að æskan
getur verið
viðkvæm í lífinu.
Óskarinn 2010 – spá að mati Rosebud og Pikknikk
BESTA MYND ÁRSINS
Avatar
The Blind Side
District 9
An Education
The Hurt Locker
Inglourious Basterds
Precious
A Serious Man
Up
Up In the Air
Rosebud: Ég vill að sjá Inglourious Basterds vinna, en það
mun ekki að
gerast. Annað hvort Avatar eða The Hurt Locker mun vinna, en ég að
spái að The Hurt
Locker vinni óskarinn.
Pikknikk: Vonandi Inglourious eða D9. En allt
fjölmiðlahypeið í kringum
Avatar og Hurt Locker mun verða til þess að önnur þeirra mun vinna.
Ég skýt á
Avatar
BESTA LEIKSTJÓRN
James Cameron - Avatar
Kathryn Bigelow - The Hurt Locker
Quentin Tarantino - Inglourious Basterds
Lee Daniels - Precious
Jason Reitman - Up in the Air
Rosebud: Ég segi að Kathryn Bigelow muni vinna, því að hún
var miklu betur
leikstýrð þó að Avatar hafi verið vel gerð.
Pikknikk: Hinsvegar held ég að Bigelow muni vinna hérna.
Fannst Hurt Locker
miklu meiri leikstjóramynd en Avatar.
BESTI LEIKARI Í AÐALHLUTVERKI
Jeff Bridges - Crazy Heart
George Clooney - Up in the Air
Colin Firth - A Single Man
Morgan Freeman - Invictus
Jeremy Renner - The Hurt Locker
Rosebud: Jeff Bridges var frábær í Crazy Heart, ég spái að
hann vinni
óskarinn fyrir þessa framistöðu, en annars væri ég einnig til í að
sjá Clooney
vinna
Pikknikk: Það að minn maður sé ekki einu sinni tilnefndur er
náttúrulega bara
skandall. Pitt var betri en þeir allir, en af þessum þá myndi ég
skjóta á Bridges.
BESTA LEIKKONA Í AÐALHLUTVERKI
Sandra Bullock - The Blind Side
Helen Mirren - The Last Station
Carey Mulligan - An Education
Gabourey Sidibe - Precious
Meryl Streep - Julie & Julia
Rosebud: Margir spá að Sandra Bullock vinni, en ég hef ekki
séð myndina og
langar ekkert að sjá hana. En annars vil ég að Carey Mulligan eða
Gabourey Sidibe
vinni, þær voru frábærar.
Pikknikk: Fokkaðu þér Sandra Bullock. Meryl Streep á að
vinna af því að það
er orðið vandræðalega langt síðan hún vann síðast. Og mér fannst
An Education
ekkert spes...
BESTI LEIKARI Í AUKAHLUTVERKI
Matt Damon - Invictus
Woody Harrelson - The Messenger
Christopher Plummer - The Last Station
Stanley Tucci - The Lovely Bones
Christoph Waltz - Inglourious Basterds
Rosebud: Waltz ownar.
Pikknikk: Mér fannst Waltz owna áður en það var í
tísku...
BESTA LEIKKONA Í AUKAHLUTVERKI
Penélope Cruz - Nine
Vera Farmiga - Up in the Air
Maggie Gyllenhaal - Crazy Heart
Anna Kendrick - Up in the Air
Mo'nique - Precious
Rosebud: Mo'nique var rosaleg í þessari mynd, ég hef aldrei
hatað neitt eins
mikið og hana í myndinni, á góðan hátt.
Pikknikk: Mér fannst Anna Kendrick skemmtilegasta leikkona
ársins. Og
Monique lék í Phat Girlz. Það gleymist seint.
BESTA FRUMSAMDA HANDRIT
The Hurt Locker, Mark Boal
Inglourious Basterds, Quentin Tarantino
The Messenger, Alessandro Camon og Oren Moverman
A Serious Man, Joel og Ethan Coen
Up, Pete Docter og Bob Peterson
Rosebud: Tarantino, for sho.
Pikknikk: QT
BESTA HANDRIT BYGGT Á ÁÐUR ÚTGEFNU EFNI
District 9, Terri Tatchell og Neill Blomkamp
An Education, Nick Hornby
In the Loop, Jesse Armstrong, Simon Blackwell, Armando
Iannucci, og Tony Roche
Precious, Geoffrey Fletcher
Up in the Air, Jason Reitman og Sheldon Turner
Rosebud: Ég elskaði Up in the Air og ég vonar að hún
vinni.
Pikknikk: Væri illað til í að sjá D9 taka þessi.
BESTA TEIKNIMYND ÁRSINS
Coraline
Fantastic Mr. Fox
The Princess and the Frog
The Secret of Kells
Up
Rosebud: Þó að ég elski Up, þá verð ég að segja að Fantasic
Mr. Fox eigi það
skilið að vinna, því að hún var miklu skemmtilegri mynd imo, en það
er kannski mín
dýrkun á Wes Anderson að tala.
Pikknikk: Up mun pottþétt vinna. En mér fannst Princess and
the Frog
langskemmtilegust af þessum.
BESTA MYND Á ERLENDRI TUNGU
Ajami (Ísrael)
El secreto de dus ojos (Argentína)
The Milk of Sorrow (Perú)
Un prophéte (Frakkland)
The White Ribbon (Þýskaland)
Rosebud: Ég hef ekki séð enga af þessum myndum nema White
Ribbon, en
ég hef sterkan trú að hún vinni, myndin var rosaleg.
Pikknikk: Ég held með Milk of Sorrow. AfþvíBara.
BESTA MYNDATAKA
Avatar
Harry Potter and the Half-Blood Prince
The Hurt Locker
Inglourious Basterds
The White Ribbon
Rosebud: Kannski er ég old school en ég get ekki séð Avatar
sem
myndatökumynd því að hún er tölvugerð, en annars segi ég The Hurt
Locker
vinni.
Pikknikk: Basterds var ótrúlega flott upptekin.
BESTA KLIPPING
Avatar
District 9
The Hurt Locker
Inglourious Basterds
Precious
Rosebud: The Hurt Locker var rosalega vel klippt.
Pikknikk: Hurt Locker tekur þessi.
BESTA FÖRÐUN
Il Divo
Star Trek
The Young Victoria
Rosebud: Star Trek, y'all
Pikknikk: Messar ekkert í Spock.
BESTA BÚNINGAHÖNNUN
Bright Star
Coco Before Chanel
The Imaginarium of Doctor Parnassus
Nine
The Young Victoria
Rosebud: Ég hef séð engar af þessum myndum en byggt við
myndirnar sem
ég sé á netinu að Doctor Parnassus vinnur imo
Pikknikk: Mér er alveg sama.
BESTA LISTRÆNA STJÓRNUN
Avatar
The Imaginarium of Doctor Parnassus
Nine
Sherlock Holmes
The Young Victoria
Rosebud: Avatar for sho
Pikknikk: Avatar by far
BESTU TÆKNIBRELLUR
Avatar
District 9
Star Trek
Rosebud: Avatar, döööööh
Pikknikk: Avatizzle
BESTA TÓNLIST
Avatar
Fantastic Mr. Fox
The Hurt Locker
Sherlock Holmes
Up
Rosebud: Up var með basically besta tónlistina.
Pikknikk: Avatar hérna held ég
BESTA FRUMSAMDA LAG
The Princess and the Frog - "Almost There"
The Princess and the Frog - "Down in New Orleans"
Paris 36 - "Loin de Paname"
Nine - "Take it All"
Crazy Heart - "The Weary Kind"
Rosebud: Af þessu lista, The Weary Kind er besta lagið.
Pikknikk: Down in New Orleans var Skemmtilegt.
Kvikmynd vikunnar að þessu sinni (22.02. - 01.03) er...
Batman: Mask of the Phantasm (1993)
Eftir THT3000
The Mask of the Phantasm, frá árinu 1993, er teiknimynd í
fullri lengd byggð á
Batman þáttunum frá tíunda áratug seinustu aldar sem við þekkjum
vonandi öll og
elskum.
Myndin segir frá því þegar dularfullur nýr ofurglæpon byrtist í
Gothamborg, klæddur
upp í svipað átfitt og Blaki og fer að drepa mafíósa. Lögreglan
telur Batman vera á bak
við þetta og byrjar að elta hann uppi. En hver er The Phantasm, og
hvernig tengist
hann fortíð Bruce Wayne?
Upprunalega átti myndin að fara beint á vídjó en hún þótti
víst svo góð að hún
fékk dreifingu í kvikmyndahús. Á sínum tíma sögðu Ebert & Roeper
hana betri en bæði
Batman Returns og Batman Forever, og aðeins örlítið verri en
upprunalega Burton
myndin frá 1989. Ég kýs persónulega að taka þetta aðeins lengra og
segja hana aðeins
verri en Nolan myndirnar en betri en báðar Burton myndirnar.
Tónlistin er líka ekkert
verri en í hinum Batman myndunum og Mark Hamill sem rödd Jókersins
gefur Jack og
Heath lítið eftir.
Myndin er líka mun myrkari en maður myndi búast við (sem er alltaf
plús hjá Batman)
og var hún bönnuð innan 12 ára hér á landi
Kvikmynd vikunnar að þessu sinni (24.12 - 31.01) er...
Fantastic Mr. Fox (2009)
Mr. Fox: Honey, I am seven fox years old. My father died at
seven and a half. I
don't want to live in a hole anymore, and I'm going to do something
about it.
Þetta er sagan af Mr. Fox og veiðiskapinu í honum. Hann hefur
sett villtu dagana
að baki sér og gerir nú það sem feður gera best: að vera
ábyrgðafullur. Einn daginn
ákveður hann að stela einu sinni enn í síðasta skiptið, frá þremur
af verstu bændum
sýslunnar. Og upphefst þá mikið ævintýri.
Þetta er nýjasta myndin hans Wes Anderson, sem er einn af
mínum uppáhalds
leikstjórnum. Og það er æðislegt að sjá hann gera einhverja nýja
hluti, til dæmis er
þetta stop-motion mynd, sem passar fullkomlega við sjónræna stílin
hans og
tónlistavalið er æðisleg. Myndin er einnig stórskemmtileg, þó að
hún sé mjög
fjölskylduvæn, er hún gerð eins og fyrir fullorðna.
Leikaravalið er til fyrirmyndar, George Clooney, Meryl Streep, Bill
Murray, Jason
Schwartzman, Willem Dafoe, Michael Gambon og Owen Wilson.
Það er virkilega synd að það er ekki víst að hún verði sýnt á
kvikmyndahúsum landsins,
en maður vonar bara.
P.S. Ég gerði íslenska textann á posterinn
Stærra
mynd
Kvikmynd vikunnar að þessu sinni (025.12 - 02.01) er...
Inglourious Basterds (2009)
Lt. Aldo Raine: Well I speak the most Italian, so I'll be your
escort. Donowitz
speaks the second most so he'll be your Italian cameraman. Omar
speaks third most,
so he'll be Donny's assistant.
Pfc. Omar Ulmer: But I don't speak Italian.
Lt. Aldo Raine: Like I said, third best. Just keep your fuckin'
mouth shut. In fact why
don't you start practicing, right now
Basterds er ótvírætt besta mynd ársins, og því tilvalið að loka
árinu með hana
sem kvikmynd vikunnar. Tarantino snýr aftur til þess að gera góðar
myndir eftir að
hafa gert Death Proof, og honum mistekst svo sannarlega ekki. Besti
leikari í heimi,
Brad Pitt sýnir snilldartakta sem Aldo Raine, foringi
hersveitarinnar sem ganga undir
nafninu The Basterds. Christopher Waltz er svo gott sem kominn með
báðar hendurnar
á Óskarinn fyrir besta leik í aukahlutverki, en aldrei hefur einum
manni tekist að vera
jafn ógnandi á fjórum tungumálum, án þess að það verði kjánalegt.
Eini slæmi
punkturinn er Eli Roth, en það þarf ekkert að hugsa um það. Einn
gaur úr bandaríska
Office er líka í myndinni.
Basterdarnir, eða eins og það var snilldarlega þýtt á íslensku,
Skítsauðin, fara um
Frakkland að drepa Nasista. Þeir komast að því að helstu leiðtogar
Nasista verða
samankomnir í kvikmyndahúsi, og þeir ætla sér að drepa þá.
Gyðingahunterinn Hans
Landa hefur önnur áform. Gyðingastúlkan Shoshanna ætlar að brenna
þá inni. Þessi
mynd er einhver sú allra skemmtilegasta á síðustu árum, og imo
besta mynd
Tarentinos. Nú ætla allir að horfa á hana í jóafríinu.
Kvikmynd vikunnar að þessu sinni (03.12 - 10.12) er...
The Room (2003)
Johnny: You are lying! I never hit you! You are tearing me
apart, Lisa!
Í staðin fyrir að setja einhverja 'góða' mynd, ælta ég að
setja eina af verstu
myndum sem ég hef séð, og einnig þá fyndnustu. Hún er svona "it's
so bad, it's good"-
mynd
The Room er um bankastarfsmann með gull hjarta,
Johnny sem er afar ástfanginn af unnustu sinni Lísa.
Einn daginn, mánuði fyrir brúðkaup þeirra, fékk Lísa nóg af Johnny,
og heldur framhjá
honum með besta vin hans, Mark. Val hennar Lisa reynist henni
dýrkeypt
Tommy Wiseau er leikstjóri myndinnar og einnig handritshöfundurinn,
framleiðandi
myndarinnar og leikur aðalhlutverkið (Johnny). Það er frekar
augljóst að maðurinn
hefur enga hugmynd um hvað hann var að reyna að gera með þessari
mynd,
sérstaklega að myndin kostaði rúma 6 milljónir dala (Hvar fékk hann
þessa fjárhæð!?).
Frammistaða hans í myndinni er algjörlega hræðileg ásamt öllum
öðrum leikurum í
myndinni. Settið er mjög augljóslega fake, margir sem ég hef sýnt
brot úr myndinni
hafa haldið að um klámmynd sé að ræða.
En það sem gerir myndina svo virkilega einstaka er hve illa skrifuð
hún er (hún er
notuð í handritagerðarskólum sem dæmi um hvernig á EKKI að gera
handrit), henni er
illa leikstýrt, lélegir leikarar, hræðileg tónlist. Í bandaríkjunum
er búið að byggja frekar
mikinn 'cult' (eins og Rocky Horror) í kringum þessa mynd, alltaf
uppselt á
miðnætusýningar en ekki bara vegna myndinnar, heldur bara uppá
stemminguna hjá
áhorfendunum, þeir kasta t.d. plastskeiðum í tjaldið.
Ég mæli með því að horfa á myndina með vinum, sérstaklega ef að
vinir ykkar eru
kvikmyndasnobbarar.
Trailerinn myndinnar er á "Klippur"
Kvikmynd vikunnar að þessu sinni (18.10 - 25.10) er...
Seven Samurai (1954)
Kambei Shimada: Danger always strikes when everything seems
fine.
Seven Samurai er um fyrrum samúræja sem hefur átt erfiða tíma
á höndum sér
tekur að sér að vernda þorp sem er ásótt af ræningja hóp á hverju
ári. Hann fer og
safnar sex sammúræjum í lið með sér. Og saman kenna þeir þorpsbúum
hvernig skal
verja sig gegn þessum ræningjum.
Þessi mynd eftir Akira Kurosawa er hreint útsagt
meistaraverk, og ein mesta
klassík sem til er. Söguþráðurinn hefur oft verið endurgerður í
mörgum myndum. M.a.
Í The Magnificent seven, The Three Amigos og jafnvel A Bug's
Life. Akira Kurosawa
hefur gert fullt af myndum sem margar myndir nú til dags er
byggðar á. Ef þú hefur
ekki enþá séð Seven Samurai þá mæli ég með því að það sé næsta mynd
sem að þú
horfir á. Þú skalt bara hafa það í huga að þetta er þriggja
klukkutíma mynd og hún er á
japönsku. Svo taktu frá kvöld og komdu þér fyrir í góðu, dimmu
herbergi og vertu viss
um að þú eigir nóg af poppi og kóki.
Kvikmynd vikunnar að þessu sinni (22.07 - 29.07) er...
Dog Day Afternoon(1975)
Sonny: ATTICA! ATTICA! REMEMBER ATTICA?
Dog Day Afternoon er meistaraverk Al Pacino. Það er bara
þannig. Sorry. Hann
sýnir ekkert smá tour de force í hlutverki sínu sem bankaræninginn
Sonny Wortzik.
Hann og Legendið John Cazale (Godfather, Deer Hunter) ákveða að
fremja bankarán
sem fer rosalega úrskeiðis. Tilgangur ránsins er mikill spoiler,
sem er eitt besta twist í
kvikmyndasögunni, og þótt mikil nýbretyni á þessum tíma.
Meistarinn Sidney Lumet leikstýrir Pacino líkt og hann gerði í
Serpico,nema núna
er Pacino ekki löggan heldur bófinn. Handritið að myndinni var
byggt á sannri sögu.
Alvöru sannri sögu, ekki sannri sögu eins og Wolf Creek eða Cabin
Fever. Fimm stjörnu
mynf sem enginn á að sleppa. Ekki einu sinni Rosebud.
Kvikmynd vikunnar að þessu sinni (13.07 - 20.07) er...
Synecdoche, New York (2008)
Caden Cotard: I know how to do it now. There are nearly
thirteen million people
in the world. None of those people is an extra. They're all the
leads of their own
stories. They have to be given their due.
Synecdoche, New York er nýjasta myndin frá höfundinum Charlie
Kaufman en
hann var handritshöfundur myndanna Being John Malkovich, Human
Nature,
Confessions of a Dangerous Mind, Adaptation og Eternal Sunshine of
the Spotless Mind
en þetta er í fyrsta skiptið sem Kaufman leikstýrir mynd. Í
aðalhlutverki er Philip
Seymour Hoffman og reyndar margir fleiri. Myndin er ekki enn komin
til landsins en
hún er væntanleg á DVD í ágúst/september. Ég mæli með myndinni en
þó skal hafa í
huga að þú munt líklega ekki skilja myndina við fyrsta áhorf.
Caden Cotard er óhamingjusamur leikhússleikstjóri sem á í
erfiðleikum með
sköpunargyðjuna en einn daginn fær hann þá hugmynd að gera leikrit
á stærð við
stórborgina New York... en verkefnið hans reynist erfiðara en hann
reiknaði með í
fyrstu.
Trailerinn myndinnar er á "Klippur"
Kvikmynd vikunnar að þessu sinni (04.07 - 011.07) er...
Edward Scissorhands(1990)
Kim: Hold me.
Edward: I can't.
Jæja, fyrst hugi virðist vera struck af Burton-fever er þá ekki
tilvalið að hafa bestu
mynd hans sem kvikmynd vikunnar? Fyrsta myndin sem hann gerði með
Johnny Depp
er líka sú besta. Aðrir leikarar eru t.d. Dieane Wiest, Anthony M.
Hall og Winona Ryder,
ásamt Vincent Fuxing Price.
Edward er hálfkláruð uppfinnings gamasl uppfinningamanns sem
ákvað að búa til
mann úr eldhúsáhöldunum sínum. Uppfinningamaðurrinn deyr svo og
Teddy er aleinn
í mörg ár, þangað til fjölskyldukona úr nærliggjandi hverfi finnur
hann. Þar lendir hann
í alls kyns veseni sem endar með ósköpum...
Kvikmynd vikunnar að þessu sinni (26.05 - 03.06) er...
Blue Velvet(1986)
Frank Booth: What kind of beer do you like to drink, neighbor?
Jeffrey Beaumont: Heineken.
Frank Booth: Heineken? Fuck that shit! Pabst Blue Ribbon!
Orson úr Despó var einu sinni ungur maður, og á þeim tíma var
hann tíður gestur
í kvikmyndum Davids Lynch. Hér leikur hann ungann mann sem finnur
eyra, og ætlar
að rannsaka málið betur. Því lengra sem hann kafarí málið, því
hættulegra verður það,
og því nær kemst hann buxunum hjá stelpunni sem hann er skotinn í.
En svo hittir
hann Frank og Dorothy. Frank er ógeðslegur gaur, og Dorothy er líka
frekar subbuleg.
Myndin er spennandi og dularfull, en ástæða þess að allir ættu
að sjá hana er
Dennis Hopper. Hann er án djóks í ógeðslegasta hlutverki ever, og
skákar jafnvel
Hannibal í creepness. Þegar hann þykist nauðga Dorothy er bara
nasty. En þetta er líka
art mynf, mikið af flottum römmum, og symbolískum skotum. Horfðu á
hana strax
Kvikmynd vikunnar að þessu sinni (28.03 - 04.04) er...
Blade Runner(1982)
Tyrell: "More human than human" is our motto.
Harrison Ford leikur aðalhutverkið í þessari frábæru
vísindaskáldsögu leikstýrð af
Ridley Scott. Myndin er byggð á bókinni 'Do Androids Dream of
Electric Sheep'. Þetta er
ein besta Ford mynd sem ég hef séð og sýnir hann frábærann leik í
þessari mynd.
Skyldu áhorf fyrir vísindaskáldsagna aðdáendur.
Myndin gerist á fjarlæga árinu þar sem fljúgandi bílar,
kjarnorkuver og
skammbyssur fjórum sinnum öflugri en haglabyssur.. 2019! Vélmenni
eru komin á það
þróunarstig að þau eru alveg eins og menn. Það er búið að ólögleiða
þessi vélmenni á
jörðinni og þau eru notuð á öðrum plánetum í þrælahaldi. Blade
Runner-ar eru
mennirnir sem drepa vélmennin sem sleppa og eru á jörðinni.
Þessa mynd ættu allir að sjá.
Kvikmynd vikunnar að þessu sinni (19.03 - 26.03) er...
Mystic River(2003)
Jimmy Markum: We bury our sins here, Dave. We wash them clean.
Sean Penn, Clint Eastwood, Tim Robbins og Kevin Bacon eru
helstu nöfnin í
myndinni sem hefði rústað óskarsun 2003 ef ekki hefði verið fyrir
Lord of the Rings.
Clintarinn leikstýir all-star casti í háklassa spennumynd. Penn og
Robbins fengu óskar
fyrir leik og Eastwoodinn sýndi sýna bestu takta síðan í
Unforgiven. Þessi mynd er
ótrúlega vel gerð í alla staði.
Fyrir 20 árum voru 3 drengir að leika sér. Einum þeirra var
rænt af barnaníðingi,
og hafði þetta mikil áhrif á líf þeirra. Mörgum árum síðar er
dóttir eins þeirra myrt,
annar sér um rannsóknina á morðinu og sá þriðji liggur undir grun
um morðið. Þessi
mynd sýnir á raunsæann máta það hræðilega í lífinu, og ætti að ekki
að fara framhjá
neinum.
Kvikmynd vikunnar að þessu sinni (03.03 - 10.03) er...
The Elephant Man (1980)
John Merrick: I am not an elephant! I am not an animal! I am a
human being! I
am a man!
The Elephant man eftir David Lynch er sorgarsaga um mann sem er
með mjög
sjaldgæfan sjúkdóm sem að gerir það að verkum að hann er með kýli
og æxli út um
allan líkama. Í myndinni er John Merrick gerður að athlægi, hann
var hafður í búri í
skemmtigarði. Þegar læknirinn Frederick sá Merrick heimtaði hann að
fá að greina
hann og reyna að leita að lækningu. Í aðalhlutverki leikur John
Hurt sem John Merrick
(Elephant man) og Sir Anthony Hopkins sem Frederick Treves. Þessi
er skyldu áhorf,
eins og flestar Lynch myndir.
Ég gef myndinni 4/5, frábær mynd. Mælt er með því að hafa
texta, en þegar
Merrick talar er ekki hægt að skilja hann. Nei, það er EKKI hægt!
Kvikmynd vikunnar að þessu sinni (23.02 - 02.03) er...
The Curious Case of Benjamin Button (2009)
Benjamin Button: It's a funny thing about comin' home. Looks
the same, smells
the same, feels the same. You'll realize what's changed is you.
Benjamin Button er epísk spennu/drama mynd um dreng sem fæðist
í enda fyrri
heimstyrjaldarinnar í New Orleans og deyr móðir hans í
fæðingu.Faðir hans efast um
að hann geti alið hann upp og skilur hann því eftir fyrir utan
elliheimili og þar tekur
Daisy við honum. Þessi drengur hefur þannig eiginleika að hann
eldist afturábak,
þ.e.a.s. þegar hann fæddist var hann á sjötugsaldri og yngist síðan
með árunum. Í
myndinni leikur Brad Pitt Benjamin og ég verð að segja að hann
stendur sig frábærlega
í henni. Ég mæli með þessari mynd til allra, hún er frábær.
Ég gef myndinni 5/5, 2 þumla upp og gítarsóló, skyldu áhorf
fyrir alla!
Kvikmynd vikunnar að þessu sinni (12.02 - 19.02) er...
There Will be Blood(2007)
Daniel Plainview: I, drink, your.. MILKSHAKE! I drink it up!
There will be blood er áhrifamikil, dramatísk og spennandi mynd
um Daniel
Plainview sem er á leiðinni að verða olíu auðkýfingur með sínum
óaðfinnanlegum
sjarma og ræðu hæfni. Í myndinni er Daniel sagt frá staðsetningu í
Kaliforníu þar sem
mikla olíu er að finna. Til þess að fá leyfi til að bora eftir
henni þarf allur bærinn að
samþykja það, þar sem bærinn er ofan á olíunni. Hann fær það
samþyki með því að
lofa skólum, mat og vinnu fyrir alla íbúa.
Myndin er frábær, ég mæli með henni til allra áhorfenda með
þroskaðan
kvikmyndasmekk. Daniel Day-Lewis stóð sig frábærlega í myndinni.
Horfðu á Þessa!
Kvikmynd vikunnar að þessu sinni (04.02 - 11.02) er...
Total Recall(1990)
Kuato:A man is defined by his actions, not his memories.
Mynd vikunnar að þessu sinni (Ha? Kemur hún seint?
Viiiitleysa!) er Total Recall,
æsispennandi spennumynd (sem er æsispennandi) með engum öðrum en
Arnold Swar
... Schwar ... Arnold Schawr ... æji, gaurinn sem lék Terminator í
aðalhlutverki. Myndin
gerist einhverntímann í framtíðinni og segir frá ósköp venjulegum
byggingarvinnumanni að nafni Douglas Quaid sem ákveður eftir
einhverja skrítna
drauma um Mars að fá sér feik-frí minningu frá fyrirtæki sem kallar
sig Rekall og
sérhæfir sig í slíku. Hann velur sér hina sívinsælu “Njósnari sem
bjargar heiminum á
mars og nælir í gelluna” minningu, en þegar fagmennirnir byrja á
verkinu þá fer
eitthvað úrskeiðis og hrindir þetta af stað ótrúlegri atburðarás
fullri af sprengingum og
blóði og töffarastælum í hámarki.
Þessi mynd, verð ég að segja, kom mér á óvart. Ég bjóst ekki
við miklu frá henni
en hún var bara býýýsna góð. Nógu góð til að mæla með henni.
Kvikmynd vikunnar að þessu sinni (08.12 - 15.12) er...
First Blood(1982)
Rambo: I could have killed 'em all, I could kill you. In town
you're the law, out
here it's me. Don't push it.
Jæja, eftir að hafa fengið smá jólafíling er kominn tími til
að setja testósterónið í
gang. Rambo er mættur, kickin ass and takin names. Öfugt við Rambo
II og III er þessi
samt ótrúlega góð mynd. Stallone er í essinu sínu sem fyrrverandi
Vietnam hermaður
sem ferðast í smábæ til að hitta fyrrvarandi herfélaga sinn, en
kemst að því að hann
hafði látist.
Lögreglan tekur hann þá fyrir að vera í jakka með bandaríska
fánanum. Þeir koma
illa fram við hann, og viðbrögð Rambo eru ótrúleg. Hann skýst undan
þeim á
mótorhjóli inn í skóg. Þeir ætla að finna hann, en þeir verða
fljótlega bráð hans. Það er
ekki hátt body count en Rambo kemur samt karlhormónunum í gang, og
konur ættu
að fíla Stallone, en hann er ennþá "mjór" eins og í Rocky I.
P.S. Takið eftir David Caruso í litlu hlutverki sem Mitch.
Kvikmynd vikunnar að þessu sinni (30.12 - 06.01) er...
The Holiday (2006)
Amanda: Sex makes everything more complicated. Even not having
it, because
the not having it... makes it complicated.
Graham: That's why it's better to have it... some say.
The Holiday er rómantísk mynd með miklum jólaanda yfir sér, og
passar þess
vegna vel á þessum tíma árs.
Tvær konur í sitthvorri heimsálfunni eiga við sama vandamál að
stríða, þær eru búnar
að gefast upp á ástinni. Þær ákveða að skipta um umhverfi og eyða
jólunum á heimili
hinnar í von um að komast burt frá sínu eigin lífi og græða gömul
sár. En ástin finnur
þær þrátt fyrir allt og þær upplifa á ný góðu hliðar ástarinnar.
The Holiday hljómar kannski klisjulega, og á vissan hátt er hún
það, en hún er
með skárri klisjumyndum sem ég hef séð og ég hafði satt að segja
frekar gaman af
henni.
Kvikmynd vikunnar að þessu sinni (21.12 - 28.12) er...
Lethal Weapon (1987)
Roger Murtaugh: Have you ever met anybody you didn't kill?
Martin Riggs: Well, I haven't killed you yet.
Jæja, (jóla)mynd vikunnar í þetta skipti er Lethal Weapon I.
Ég valdi hana sem
mynd vikunnar því þetta er með betri jólamyndum sem gerðar hafa
verið.
Myndin kom út árið 1987, leikstýrð af Richard Donner og skartar Mel
Gibson og Danny
Glover í aðalhlutverkum.
Sagan segir frá tvem lögreglumönnum sem lenda saman þrátt fyrir að
hvorugur þeirra
vilji það. Martin Riggs (Gibson) er nýbúinn að missa konu sína og
er í
sjálfsmorðshugleiðindum þegar hann er settur saman með Roger
Murtaugh (Glover),
svört lögga sem er orðin "Too old for this shit." eins og kemur oft
fram. Þeir þurfa að
læra að vinna saman til að leysa flókið mál sem inniheldur
eiturlyfjasmygl og heilan
haug af hasar.
Ég mæli einfaldlega með þessari mynd. Hún er algjör perla ef
maður hefur
gaman af gömlum týpískum löggumyndum. Þótt myndin sé uppfull af
klisjum þá gerir
hún það upp með góðri skemmtun og miklum hasar.
Ég vil þakka fyrir mig og óska ykkur öllum gleðilegra jóla og
farsældar á komandi ári.
Þessi kvikmynd vikunnar var í boði oRiley.
Kvikmynd vikunnar að þessu sinni (13.12 - 20.12) er...
Requiem for a Dream (2000)
Sara Goldfarb: How come you know more about medicine than a
doctor?
Harry Goldfarb: Believe me Ma: I know.
Kvikmynd vikunnar að þessu sinni, Requiem for a Dream, fjallar
um fjórar
manneskjur sem eru eiturlyfjafíklar. Í myndinni er fylgst með Harry
og Marion sem eru
par og Tyrone. Saman eru þau að reyna að meika það í eiturlyfja
bransanum þegar allt
fer niður á við. Myndin er hreinskilin, sýnir vel eiturlyfja
heiminn og afleiðingar þeirra.
Þessi mynd í einu orði er epísk. Hún vann fjölda verðlauna meðal
annars fyrir einstaka
myndatöku og klippingu. Lagið úr myndinni er einnig frægt og hefur
verið notað í hinar
ýmsu stiklur.
Tékkið á þessari, hún er ein raunverulegasta eiturlyfjamynd
heims, ásamt
Trainspotting. Þú hugsar þig tvisvar um áður en þú sprautar þig
eftir að hafa séð hana!
Kvikmynd vikunnar að þessu sinni (26.11 - 02.12) er...
Der Untergang (Downfall) (2004)
Adolf Hitler: The war is lost... But if you think that I'll
leave Berlin for that, you
are sadly mistaken. I'd prefer to put a bullet in my head. .
Der Untergang (Downfall) fjallar um síðustu dagana í lífi
Adolfs Hitlers, og er
honum fylgt síðustu dagana, að dauða hans og þangað til Seinni
Heimstyrjöldinni er
lokið.
Myndin er frekar þung en alveg frábær. Hún kemur efni sínu vel til
skila og túlkun
Bruno Ganz á Hitler er hreint ótrúleg.
Myndin er í 74. sæti á Top 250 IMDB listanum yfir hæstu
einkunnargjöf.
Ef þú hefur ekki séð hana, drífðu í því. Þetta er ein af þeim
sem allir verða að sjá.
Kvikmynd vikunnar að þessu sinni (18.11 - 25.11) er...
Star Wars: Episode V - The Empire Strikes Back (1980)
Yoda: You must unlearn what you have learned.
The Empire strikes back er önnur myndin sem gerð var í hinni
geysivinsælu
Stjörnustríðs seríu og fimmti kafli sögunnar af sex (sérvitri,
sérvitri George Lucas).
Empire er líka besta myndin í allri seríunni að mínu mati. Hún
hefur allt sem mynd
þarf! Allt! Myndin segir frá Loga Geimgengli (eða Luke Skywalker,
eins og hann kallast
víst á ensku, en við tölum íslensku hér!!) og ævintýrunum sem hann
lendur í með
félögum sínum Han Solo og prinsessunni Leiu og barráttu þeirra við
hinn illa
Svarthöfða! Logi fær í þessari mynd leiðsögn frá hinum mikla og
máttuga (og sniðuga)
Jedi meistara, Yoda, sem þjálfar hann og sýnir honum vegi máttsins!
Meistarastykki sem ég geri bara fastlega ráð fyrir að allir
hérna hafi séð, sá sem
hefur ekki séð hana ætti eiginlega bara að fara að horfa á hana
núna.
Kvikmynd vikunnar að þessu sinni (5.11 - 12.11) er...
Snatch(2000)
Cousin Avi: And this schmuck is gambling? You're talking about
Franky "I've got
a problem with gambling" fucking Four Fingers Doug.
Hey, munið þið eftir því þegar ap Guy Ritchie var frægur fyrir
góðar myndir en
ekki fyrir að vera giftur? Ég man eftir því! (Þó ég hafi verið níu
ára!) Árið 2000 gerði
hann myndina Snatch sem er besta mynd sem Bretar hafa sent frá sér.
Brad Pitt hefur
aldrei verið betri nema í Fight Club, JAson Stratham var að koma
fram og Benicio del
Toro var frábær í litlu hlutverki.
Demanti er rænt í Antwerp og ræningjarnir fara til Englands.
Þar ætla þeir að selja
hann, en honum er aftur rænt. Á sama tíma eru tveir umboðsmenn að
reyna að koma
boxaranum sínum á framfæri þegar hann er steinrotaður af Brad Pitt
og ófær um að
berjast. Pittarinn er þá fenginn til að berjast í staðin. Vinnie
Jones er svo fenginn til að
finna demantinn og allt flækist þetta saman.
Kvikmynd vikunnar að þessu sinni (29.10 - 5.11) er...
American Beauty(1999)
Lester Burnham: I feel like I've been in a coma for the past
twenty years. And I'm
just now waking up.
Mynd vikunnar (sem kemur ööörlítið seint að þessu sinni) er
engin önnur en
meistaraverkið frábæra American Beauty frá árinu 1999 leikstýrð af
Sam Mendes með
Kevin Spacey í aðahlutverki, Kevin Spacey er auðvitað, eins og
allir vita, bestur. Myndin
segir frá miðaldra manninum Lester Burnham og fjölskyldu hans og
þeirra
vandamálum. Utan frá virðist þessi fjölskylda ósköp venjuleg, en
það er ekki allt sem
sýnist eins og við fáum að sjá.
Myndin vann fimm óskarsverðlaun og átti það svo sannarlega
skilið því þetta er
með þeim betri myndum sem gerðar hafa verið, treystið því. Ef þið
hafið ekki séð hana
... sjáið hana þá!
Kvikmynd vikunnar að þessu sinni (07.10 - 14.10) er...
Unforgiven(1992)
Will Munny: All right, I'm coming out. Any man I see out
there, I'm gonna shoot
him. Any sumbitch takes a shot at me, I'm not only gonna kill him,
but I'm gonna kill
his wife, all his friends, and burn his damn house down.
Árið 1992 kom að því að Clint Eastwood sneri aftur til
vestrans, kvimyndanna sem
gerðu hann frægann. Og honum tókst svo vel upp, að þessi mynd er í
sama gæðaflokki
og The Godd, The Bad and The Ugly. Honum tekst hið ógerlega, hann
sannar að hann
er jafn svalur 62 ára og hann var þegar hann var 34 ára. Og
viðtökurnar sem hún fékk
voru eftir því. Hún vann helling af Óskarsverðlaunum árið 1992, þar
á meðal besta
myndin. Morgan Freeman Kemur sterkur inn sem félagi Clints og Gene
Hackman er
frábær sem óvinurinn. Þegar horft er á myndina getur maður vel
ímyndað sér að
William Munny sé nafnlausi maðurinn þegar hann er kominn á efri
árinÞessi mynd er
algert skylduáhorf fyrir alla sanna kvikmyndaáhugamenn.
Morgan Freeman og Clint Eastwood leika tvo fyrrverandi
glæpamenn sem hafa
horfið frá fyrra líferni. Þeir ákveða svo að taka að sér eitt starf
til viðbótar, vegna
peningaskorts. Í bænum Big Whiskey var hóra ein skorið eillilega,
og starfssystur
hennar ákveða að hefna sín á kúrekunum sem réðust á hana. Það sem
þeir vita ekki er
að Clint Eastwood ætlar sér að ná þeim...
Kvikmynd vikunnar að þessu sinni (01.10 - 8.10) er...
Memento(2000)
Leonard Shelby: [voiceover] So where are you? You're in some
motel room. You
just - you just wake up and you're in - in a motel room. There's
the key. It feels like
maybe it's just the first time you've been there, but perhaps
you've been there for a
week, three months. It's - it's kind of hard to say. I don't - I
don't know. It's just an
anonymous room.
Memento er mynd frá árinu 2000 leikstýrð af breska snillingnum
Christopher
Nolan eftir smásögu bróður síns um mann, Leonard sem kljáist við
einhverskonar
skammtíma minnisleysi, hann getur sem sagt ekki búið til nýjar
minningar, og hann er
að eltast við morðingja konu sinnar. Myndin er frekar óvenjuleg á
þann hátt að hún
gerist ekki alveg í réttri tímaröð. Þarf ég að segja meira? Myndin
var tilnefnd til tveggja
óskarsverðlauna fyrir handrit og klippingu.
Meistaraverk. Þessi mynd er algjört meistaraverk og ef einhver
segir eitthvað
annað, þá er hann eða hún klikk! Horfið á hana eða deyjið ella.
Kvikmynd vikunnar að þessu sinni (23.09 - 30.09) er...
Amadeus(1984)
Salieri: But they showed no corrections of any kind. Not one.
He had simply
written down music already finished in his head. Page after page of
it as if he were just
taking dictation. And music, finished as no music is ever finished.
Displace one note
and there would be diminishment. Displace one phrase and the
structure would fall.
Ég fullyrði hér með að kvikmynd vikunnar sé ein besta mynd sem
gerð hefurverið.
Amadeus eftir Milos Forman vann átta Óskarsverðlaun árið sem hún
kom út, þar á
meðal sem besta myndin. Milos Forman leikstýrði einnig hinni
frábæru One flew over
the cuckoo's nest, sem var kvikmynd vikunnar fyrir stuttu. Að mínu
mati er þessi betri.
Aðalpersóna myndarinnar er ekki Mozart eins og titillin gefur til
kynna, heldu ítalska
tónskáldið Salieri, sem var afbrýðisamur mjög út í Mozart, og
hvernig hann tekur á
þessari afbrýðisemi.
Ef þú ert ekki búinn að sjá þessa ættir þú að láta athuga
toppstykkið á þér. Það er
einfaldlega óásættanlegt.
Kvikmynd vikunnar að þessu sinni (17.09 - 24.09) er...
Psycho(1960)
Norman Bates: She just goes a little mad sometimes. We all go a
little mad sometimes.
Haven't you?
Marion Crane: Yes. Sometimes just one time can be enough.
Psycho er toootally mynd vikunnar í þetta skiptið. Leikstýrð af
meistara Alfred
Hitchcock árið 1960. Myndin segir frá ungri konu sem grípur gott
tækifæri þegar það
býðst og stelur $40.000 frá vinnuveitanda sínum til að hefja nýtt
og gott líf með
elskhuga sínum frábæra, Sam! Hún keyrir með peninginn úr bænum og
ætlar að fara til
Sam, þegar það byrjar að dimma og rigning er skollin á ákveður hún
að leita sér skjóls
í litlu og huggulegu vegahóteli þar sem vingjarnlegur náungi að
nafni Norman Bates
stjórnar hlutum ásamt því að sjá um eldgamla rúmfasta móður sína
...
Gaurar og gaurur! Ef þið hafið ekki séð þessa mynd er ekki allt
í lagi hjá ykkur,
þessi mynd er svona frekar mikið must. Enda alveg svakalega góð
mynd og inniheldur
hún "sturtuatriðið" fræga og rosalegann endi. Horfið á þessa.
Kvikmynd vikunnar að þessu sinni (09.08 - 016.09) er...
The Shawshank Redemption(1994)
Andy Dufresne: Get busy living, or get busy dying.
Ójá! í tilefni af því að The Shawshank Redemtion er komin í
fyrsta sætið á IMDb
Top 250 listanum er tilvalið að hafa hana sem kvikmynd vikunnar.
The Shawshank
Redemtion kom út á hinu frábæra kvikmyndaári 1994 (Forrest Gump,
Pulp Fiction!) og
var frábær í alla staði. Tim Robbins var frábær, Morgan Freeman var
frábær og
leikstjórinn, Frank Darabont mun aldrei verða betri. Myndin var
tilnefnd til 7
Óskarsverðlauna og vann engin, sem að mínu mati er mesta hneyksli
kvikmyndasögunnar.
Í byrjun myndarinnar er Andy Dufresne sakfelldur fyrir morðið á
konunni sinni og
er hann sendur í Shawshank fangelsið. Þar kynnist hann fanganum
Red, og fylgst er
með þeim í gegnum langa fangelsisvist. Myndin er byggð á sögu eftir
Steven King, sem
aldrei þessu vant er ekki hryllingssaga. En allavegana, horfið á
hana, núna, bestu mynd
í heimi!
Kvikmynd vikunnar að þessu sinni (31.08 - 07.09) er...
Clue(1985)
The Motorist: Where is it?
Wadsworth: What? The body?
The Motorist: The phone. What body?
Wadsworth: There's no body. Nobody. There's-there's nobody in the
study.
Clue er mynd frá árinu 1985 sem segir frá sex manns sem eru
kölluð með
dularfullu bréfi í dularfullan kastala. Af hverju veit enginn af
þeim, en eitt af einu mæta
þau í kastalann og tekur þar á móti þeim brytinn Wadsworth sem
útskýrir fyrir þeim að
gestgjafi þeirra Hr. Boddy geti útskýrt allt. Í ljós kemur að allar
persónurnar eiga stórt
leyndarmál og þegar ein persónanna fellur frá skyndilega (MORÐ!)
verða þau öll að
standa saman með vinnufólki hússinsog leysa morðgátuna, hver er
morðinginn, hvar
drap hann fórnarlambið og með hverju? Var það Mrs. Peacock eða
Professor Plum? Eða
var það kannski Wadsworth sjálfur!? Þetta er allt voða dularfullt
eitthvað. Myndin er
byggð á gríðarlega vinsæla borðspilinu Clue.
Þessi kom mér virkilega á óvart verð ég að segja! Ég veit ekki
með ykkur en ég hef
lúmskt gaman af svona murder mysteries svo ef þið eruð eitthvað
eins og ég þá eigið
þið eftir að hafa gaman af þessari. Þess má geta að á DVD-útgáfu
myndarinnar eru
þrír mögulegir endar sem geta komið upp! Með aðalhlutverk fara
meðal annars Tim
Curry, Christopher Lloyd og Madeline Kahn.
Kvikmynd vikunnar að þessu sinni (11.08 - 18.08) er...
The Big Lebowski(1998)
The Dude: Nobody calls me Lebowski. You got the wrong guy. I'm the
Dude, man.
Að Þessu sinni er það The Big Lebowski eftir Coen-bræður sem er
kvikmynd
vikunnar. Hún er frábær. Jeff Bridges leikur The Dude,
iðjuleysingja sem lendir í
vandræðum þegar tveir menn ráðast inn til hans, leitandi an alnafna
hans. Eiginkonu
nafnans er svo rænt og hann fær The Dude til að aðstoða sig við að
endurheimta hana
"with hilarous consequences".
Kvikmynd vikunnar að þessu sinni (12.05 - 19.06) er...
Sin City(2005)
Dwight: It's time to prove to your friends that you're worth a
damn. Sometimes that
means dying, sometimes it means killing a whole lot of people.
Mynd vikunnar að þessu sinni er myndin Sin City frá 2005 og hún
er svalasta
mynd sem gerð hefur verið. Robert Rodriguez sannar hér að hann
GETUR gert góða
mynd þegar hann bara vill og er ekkert að leikstýra Spy Kids
myndum! Hann hlýtur að
þessu sinni aðstoð frá hinum kynþokkafulla Frank Miller sem
skrifaði einmitt Sin City
myndasögurnar sem myndin er byggð á. Myndin segir þrjár sögur, ein
fjallar um Marv
(Mickey Rourke), nautsterkan smákrimma sem flækist í morðmál sem er
stærra en
hann grunar ..., önnur fjallar um Dwight (Clive Owen),
sannkallaðann töffara sem er að
hjálpa einhverjum hórum úr svakalegu veseni, þriðja fjallar um
lögreglumanninn
Hartigan (Bruce Willis) og baráttu hans til að vernda unga stelpu
þegar hún er í
rosalegu messi! Myndin er öll svarthvít eins og myndasögurnar þó
stöku sinnum sjáum
við gulan og rauðan lit poppa upp þar sem hann er við hæfi.
Leikararnir standa sig allir rosalega vel og allt í myndinni er
til sóma. Ein af
mínum uppáhalds og ég vona svo sannarlega að gaurinn fari að flýta
sér með
framhaldið. Ef þið hafið ekki séð þessa er eitthvað mikið að ...
lagið það. Strax!
Kvikmynd vikunnar að þessu sinni (05.05 - 11.06) er...
Waynes Worlds(1992)
Wayne Campbell: Yes, officer, is there a problem?
T-1000: Have you seen this boy?
Waynes World erein besta grínmynd allra tíma. Period! Hún
fjallar um þá Wayne
og Garth sem eru frekar vonlausir náungar sem taka upp
sjónvarpsþátt í kjallara
foreldra Waynes. Þrátt fyrir að vera frekar einfldur þá nýtur hann
nokkura vinsælda. Svo
mikilla reyndar að stórlax nokkur ætlar sér að kaupa réttinn að
þáttunum.
Myndin var byggð á Saturday Night Live sketsum sem þeir Myers
og Carvey léku
í. Myndin naut mikilla vinsælda á sínum tíma og kemur ennþá
velflestum til að hlæja.
Ætlaru að horfa á hana í vikunni? Já? Good call!
Kvikmynd vikunnar að þessu sinni (30.05 - 5.06) er...
Once Upon a Time in the West(1968)
Morton: Not bad. Congratulations. Tell me, was it necessary that
you kill all of them? I
only told you to scare them.
Frank: People scare better when they're dying.
Once Upon a Time in the West er vestri leikstýrður af meistara
Sergio Leoni árið
1968. Myndin sameinar þá Leoni og tónskáldið mikla Ennio Morricone
enn á ný. Þetta
meistaraverk segir frá þremur gaurum og einni gellu, gaur númer
eitt;
leyndardómsfullur maður sem ber ekkert vopn, aðeins munnhörpu sem
hann spilar á,
gaur númer tvö; glæpamaðurinn með gullhjartað sem vill sanna
sakleysi sitt, gaur
númer þrjú; kaldrifjaði bláeygði morðinginn. Og svo auðvitað
gellan, hawtie-ið sem
leitar að nýju upphafi! Vegir þessara persóna liggja síðan allir
saman í awesomely illu
railway plotti. Þess má einnig geta að þessi mynd er með svalasta
zoom-out atriði
sögunnar!
Ég skammast mín fyrir að segja að mér finnst þessi mynd betri
en Spaghetti
Western trilógían. Langbesti vestri sem ég hef séð og ég naut
myndarinnar í botn. Vona
að þið horfið á hana ... og njótið ... því þið munuð njóta, ójá.
Kvikmynd vikunnar að þessu sinni (21.05 - 28.05) er...
Reservoir Dogs(1992)
Mr. Blonde: Hey Joe, you want me to shoot this guy?
Mr. White: Shit... You shoot me in a dream, you better wake up and
apologize.
Í þessari frumraun sinni á hvíta tjaldinu tekst Quentin
Tarantino að skapa
tímalausa klassík. Sex menn sem vita ekki nafn hvors annars eru
fengnir til að fremja
bankarán og til þess að þeir kjafti ekki um hvorn annan fá þeir
ekki að vita nöfn hinna.
Síðar kemur í ljós að einn þeirra er lögreglumaður og það stefnir
verkefninu í voða,
Þetta er að margra mati ein besta mynd allra tíma, og ekki
skemmir leikaravalið
fyrir. Steve Buscemi á leiksigur sem Mr. Pink og Michael Madsen
hefur ekki enn náð að
hrista afsér Mr. Blonde stimpilinn. Svo þekkja allir hvað kom
næst...
Kvikmynd vikunnar að þessu sinni (15.05 - 21.05) er...
Forrest Gump(1994)
Forrest Gump: My momma always said, "Life was like a box of
chocolates. You
never know what you're gonna get."
Forrest Gump er kvikmynd vikunnar að þessu sinni og fjallar
hún um hin ljúfa og
heimska Forrest Gump sem er listilega vel leikinn af Tom Hanks
(enda fékk hann
óskarinn fyrir hlutverkið) og lífssögu hans og raunir en hann hefur
lifað afar merkilegu
lífi. Mynd þessi hlaut allt í allt 6 óskarsverðlaun en var tilnefnd
til 13.
Þetta er með þeim betri myndum sem ég hef séð skal ég segja
ykkur, átakanleg,
sorgleg, sniðug og skemmtileg. Það er alltaf hægt að horfa á hana
aftur og ef það er
skylda að horfa á einhverja kvikmynd, þá er það Forrest Gump. Sjáið
þessa!
Kvikmynd vikunnar að þessu sinni (07.05 - 13.05) er...
The Good, The Bad and The Ugly(1966)
Man With No Name: You see, in this world there's two kinds of
people, my friend:
Those with loaded guns and those who dig. You dig.
Í könnun sem send var inn var þessi mynd kosin mynd vikunnar.
Hún á þann
heiður fyllilega skilinn, enda líklega besti vestri
kvikmyndasögunnar. Hún fjallar um
naflausa manninn sem ásamt smákrimmanum Tuco heldur í
fjársjóðsleit. Þeir þurfa þó
að flýta sér því leigumorðinginn Angel Eyes ætlar sér að ná
fjársjóðnum á undan þeim.
Ég hef sjaldan séð jafn stórfenglega mynd og þessa og til að
mynda er atriðið
með Tuco í kirkjugarðinum eitt það eftirminnilegasta sem sést
hefur. Endilega kíkið á
þessa!
Kvikmynd vikunnar að þessu sinni (30.04 - 06.05) er...
A Goofy Movie (1995)
Max: Uhh ... pabbi, ÞETTA ER STÓRFÓTUR! Guffi: Viltu bakka
aðeins Herra Fótur,
þú ert úr fókus.
A Goofy Movie, eða Guffagrín á íslensku er Disney mynd og kom
út árið 1995,
hún er leistýrð af Kevin Lima sem leikstýrði myndum eins og Tarzan
og Enchanted.
Hún fjallar í stuttu máli um Guffa (sem ég held nú að allir kannist
við!) sem ákveður að
taka son sinn Max í margra vikna ferðalag að veiðivatni einu til að
styrkja samband
þeirra feðgana. Max er ekki alveg að fíla þetta hjá karlinum þar
sem hann hefur loksins
nælt sér í stefnumót við draumadísina en neyðist þó til að koma með
honum og þeir
feðgar lenda í ýmsum ævintýrum saman.
Guffagrín er að mínu mati vanmetnasta Disney mynd sem gerð
hefur verið. Hún
er bæði drepfyndin og afskaplega hjartnæm! Stútfull af litríkum og
skemmtilegum
persónum. Algjör gullmoli þessi!
Kvikmynd vikunnar að þessu sinni (22.04 - 29.04) er...
Dogma (1999)
Jay: Yo man, tell me something about me.
Rufus: You masturbate more than anyone on the planet.
Jay: Aw fuck, everyone knows that. Tell me something nobody knows.
Rufus: When you do it, you're thinking about guys.
Jay: Dude, not all the time.
Meistaraverkið Dogma kom út árið 1999 og er af mörgum talin
besta mynd Kevin
Smiths. Aðalpersóna hennar er Bethany, síðasti afkomandi Jesús. Hún
hittir tvo
"spámenn", vini okkar þá Jay og Silent Bob. ásamt þrettánda
postulanum Rufusi þurfa
þau að koma í veg fyrir að föllnu englarnir Loki og Bartleby fái
fyrirgefningu synda og
eyði heiminum. Margir afbragðs leikarar koma fram í myndinni, þar á
meðal Matt
Damon, Ben Affleck, George Carlin, Salma Hayek, Jason Lee og Chris
Rock! Það
eftirminnilegasta við myndina er samt Buddy Christ, allir hafa séð
hann.
Þegar þessi mynd kom út fékk leikstjórinn fjölda morðhótanna
fyrir að gera lítið
úr kaþólskri trú. Það skyggir þó ekki á frábæra mynd, stórleik
Jason Mewes sem Jay og
ótal brandara. Þetta er Hiklaust ein besta mynd síðari ára.
Kvikmynd vikunnar að þessu sinni (15.04 - 22.04) er...
The Usual Suspects (1995)
Verbal: The greatest trick the devil ever pulled was convincing
the world he didn't
exist.
The Usual Suspects kom út árið 1995 og er leikstýrð af Bryan Singer
og finnst mér
frekar óhætt að segja að hún er lang besta mynd kauða enda er þetta
algjört
meistarastykki. Myndin segir í stuttu máli frá fimm krimmum sem eru
dregnir í svona
“police line-up” svo maður sletti nú aðeins, út af því að þeir eru
allir grunaðir um
glæp. Þegar kemur í ljós að enginn þeirra hefur framið glæpinn
ákveða þeir allir að
vinna saman til að hefna sín smá á löggunni en það sem þeir vita
ekki er að þeir eru
flæktir í dálítið stærra og hættulegra! Myndin er öll sögð í gegnum
einn glæpamanninn,
hinn kripplaða Verbal Kint (sem er meistaralega leikinn af Kevin
Spacey) sem segir
lögreglumanninum Dave Kujan (Chazz Palminteri) og áhorfendum sögu
þeirra félagana
frá byrjun til enda. Aðrir leikarar í myndinni eru t.d. Stephen
Baldwin, Gabriel Byrne,
Benicio Del Toro og Kevin Pollak sem fara allir með hlutverk sín af
mikilli snilld.
Þessi mynd er bara svo geðveik að það er varla hægt að lýsa því.
Einn mest jaw-
dropping endir sem sést hefur í kvikmynd og maður getur varla tekið
augun af
skjánum allan tímann sem myndin á sér stað. Þess má geta að hún
vann tvö
óskarsverðlaun, ein fyrir besta karlmannsleik í aukahlutverki
(Spacey) og ein fyrir besta
handrit. Ég mæli sterklega með að þið tékkið á þessari!
Kvikmynd vikunnar að þessu sinni (8.04 - 15.04) er...
One Flew Over the Cuckoo's Nest (1975)
McMurphy: Which one of you nuts has got any guts?
Þá er Jack Nicholson mættur hér í einni af sínum bestu myndum,
Gaukshreiðrinu.
Nicholson leikur R.P. McMurphy, smákrimma sem tekur upp á því að
gera sér upp
geðveiki til að njóta ljúfa lífsins, eða svo heldur hann. því á
hælinu er hin grimma
hjúkrunarkona Ratched (Wretched?). Hann ákveður að gera henni lífið
leitt og myndast
mikil togstreita á milli þeirra.
Á Óskarsverðlaunahátíðinni 1975 fékk þessi mynd "The Big Five",
Besta leikstjóra
(Milos Forman), Besta Leikara (Jack), Besta Leikkona (Louise
Fletcher) Besta Handrit og
Besta Mynd. Það ætti að segja sitt. Ég hvet alla til að horfa á
hana þessa og minni á að
hún er í 7. sæti á Top 250!!!
Kvikmynd vikunnar að þessu sinni (1.04 - 08.04) er...
A Hard Day's Night (1964)
Reporter: Are you a mod, or a rocker?
Ringo: Um, no. I'm a mocker.
Kvikmynd vikunnar að þessu sinni er kvikmyndin A Hard Day’s Night
og sjálfir Bítlarnir
fara með aðalhlutverk. Myndin kom út árið 1964 þegar bítlaæðið stóð
sem hæst og er
Richard Lester leikstjóri hennar. Myndin fjallar eiginlega bara um
það að Bítlarnir eru
að fara að spila á einhverjum tónleikum og lenda í alls kyns
veseni. Myndin var tilnefnd
til tveggja óskarsverðlauna, fyrir tónlist og handrit.
Þetta er að mínu mati ákaflega skemmtileg mynd með æðislegri
tónlist og þeir sem
hafa ekki séð hana eiga skilið að verða ærlega flengdir. Bítlarnir
fara algjörlega á
kostum hérna og þetta hlýtur að teljast sem ein besta tónlistarmynd
allra tíma.
Allavega mín uppáhalds. Sjáið þessa!
Kvikmynd vikunnar að þessu sinni (25.03 - 01.04) er...
A Clockwork Orange (1971)
Alex: Real Horrorshow
A Clocwork Orange er að margra mati ein besta mynd allra tíma. Má
þess geta að hún
er í 50. sæti á IMDb top 250, sem er ekki slæmt. Aðalpersóna
myndarinnar er Alex,
ofbeldisfullur unglingur sem lendir í fangelsi fyrir morð, eftir
villt "Ultra-Violence kvöld
með Droogunum sínum. Ekki er hún einungis ein besta mynd heims,
heldur líka ein sú
mest "disturbing" og fá margir hroll þegar myndin er rifjuð
upp.
Öfugt við síðustu kvikmynd vikunnar segir hér ekki frá öllum
söguþræðinum, þar sem
það væri bara spoiler, en það verða ali að sjá hana, því allir sem
ekki hafa séð
Clockworkið eru aumingjar með hor.
Kvikmynd vikunnar að þessu sinni (18.03 - 25.03) er...
The Lion King (1994)
Pumbaa: Kid, what's eatin' ya?
Timon: Nothing! He's at the top of the food chain!
Þessi er ein af þeim sem allir ættu að muna eftir, teiknimyndin
Konungur Ljónanna
sem Disney gaf út það góða ár 1994. Myndin segir frá ljónsunganum
Simba sem er
sonur hins mikla og máttuga kóngs, Mufasa! En þegar bróðir Mufasa,
Skari, telur Simba
trú um að hann hafi drepið föður sinn (fkn Skari!) flýr Simbi burt
af útaf hræðslu og
skömm á því sem hann telur sig hafa gert. Þar hittir hann marga
sniðuga og
skemmtilegar persónur, t.d. Tímon og Púmba sem eru örugglega bara
fyndnustu
Disney persónurnar frá upphafi. Eftir mörg ár af útlegð snýr Simbi
svo heim og sér að
Skari er orðinn kóngur ... illur kóngur! Svo Simbi verður að gera
tilkall til krónunnar
sem er réttilega hans.
Jæja þá er ég eiginlega búinn að segja frá næstum öllu sem gerist í
myndinni, heh. En
ekki eins og þið hafið ekki séð hana öll. Ef ekki, þá mæli ég
virkilega sterklega með
henni því þetta er líklega besta teiknimynd sem gerð hefur verið!
Kvikmynd vikunnar að þessu sinni (10.03 - 17.03) er...
Bananas (1971)
Fielding Mellish: I had a good relationship with my parents.
They very rarely h-
... I think they hit me once, actually, in my whole childhood.
They, they, uh, started
beating me on the 23rd of December in 1942, and stopped beating me
in the late
Spring of '44."
Loksins, loksins! Mikil eftirspurn hefur verið eftir Woody Allen
mynd sem mynd
vikunnar og nú er komið að því. Í Þessari viku er það ein af mínum
uppáhalds,
Bananas. Öfugt við sinni myndir Allens er þessi ekki ádeila, heldur
frekar einfaldur
slapstick húmor. Aðalpersónan, Fielding Mellish sem fer til Suður
Ameríku eftir að hafa
hætt með kærustunni. Þar lendir hann fyrir slysni í miðri byltingu.
Afgangurinn af
myndinni er mjög fyndinn. Má þar nefna þegar Fielding kemur í
opinberri heimsókn til
Bandaríkjanna.
Allavega, frábær mynd í alla staði og ég mæli afskaplega með henni,
ef þú hefur ekki
séð hana ertu bara LEIM og þú verður að sjá hana! (Vá, hvar hef ég
séð þennann texta
áður...)
Kvikmynd vikunnar að þessu sinni (3.03 - 10.03) er...
Donnie Darko (2001)
Donnie: "Why do you wear that stupid bunny suit?"
Frank: "Why are you wearing that stupid man suit?"
Jeee, mynd vikunnar að þessu sinni er meistaraverkið Donnie Darko
sem er leikstýrð
og skrifuð af Richard Kelly og kom út árið 2001. Þessi mynd, myndi
ég segja að væri
ein mesta cult mynd allra tíma bara, flestir alvöru
kvikmyndaaðdáendur hafa séð hana
og flestir elska hana! Hún segir frá ungum skóladreng að nafni
Donnie. Honum líkar
illa við foreldra sína og er smá vandræða unglingur eins og sagt
er. Einn daginn byrjar
Donnie að sjá kanínu sem kemur til hans og segir honum að heimurinn
muni enda eftir
28 daga! Myndinni verður ekki lýst betur en þetta án þess að fara
út í eitthvað svaka
stöff. Þessi mynd hljómar reyndar alls ekki vel þegar maður les um
hana en ég get
lofað fólki því að maður verður sko alls ekki fyrir vonbrigðum með
hana. Donnie Darko
er án vafa ein flóknasta, snjallasta og dularfyllsta mynd sem hefur
litið dagsins ljós.
Með aðalhlutverk fara systkinin Jake og Maggie Gyllenhaal, en Noah
Wyle og Drew
Barrymore fara líka með hlutverk í myndinni.
Allavega, frábær mynd í alla staði og ég mæli afskaplega með henni,
ef þú hefur ekki
séð hana ertu bara LEIM og þú verður að sjá hana!
Kvikmynd vikunnar að þessu sinni (17.02 - 24.02) er...
Eternal Sunshine of the Spotless Mind (2004)
Joel: "Random thoughts for Valentine's day, 2004. Today is a
holiday invented by
greeting card companies to make people feel like crap."
Leikstýrð af Michel Gondry og með aðalhlutverk fara þau Jim Carrey
og Kate Winslet.
Ekki eru nöfn þessi af verri kantinum, heldur ekki nafn
handritshöfundarins en það
mun vera hinn mikli og máttugi Charlie Kaufman, sem er náttúrulega
alger snillingur,
sem skrifaði handritið af þessari mynd. Eternal Sunshine segir frá
Joel (Carrey) og
Clementine (Winslet) sem eru par og yfir sig ástfangin af hvoru
öðru. En þegar eitthvað
klikkar í sambandinu fer Clementine til fyrirtækis sem kallar sig
Lacuna Inc. sem
sérhæfir sig í að láta fólk gleyma ýmsum hlutum úr fortíðinni og
lætur þurrka Joel
algjörlega úr minni sínu. Joel kemst að þessu og ákveður pirraður
að hann vilji láta
gera það sama við sig, hann vill láta þurrka Clementine út. Megnið
af myndinni á sér
síðan stað á meðan á þessu stendur og í miðri útþurrkuninni byrjar
Joel að muna af
hverju hann elskaði hana til að byrja með og reynir eins og hann
getur að stoppa þetta.
Aðrir frægir leikarar koma einnig við sögu í þessari mynd eins og
Elijah Wood, Mark
Ruffalo, Kirsten Dunst og Tom Wilkinson sem standa sig (líkt og
Carrey og Winslet)
afbragðsvel. Þessi mynd er, eins og maður segir "algjört must" og
ég hvet alla
eindregið til að horfa á þessa ef þið hafið ekki séð hana og sjá
hana aftur bara ef þið
hafið þegar gert það!
Kvikmynd vikunnar að þessu sinni (26.01 - 02.02) er...
The Princess Bride (1987)
"Inigo Montoya: You seem a decent fellow. I hate to kill you."
"Westley: You seem a decent fellow. I hate to die."
Meistaraverk Rob Reiner frá árinu 1987 sem segir frá hetjunni
Westley og ævintýrum
hans. Cary Elwes leikur hér Westley sem lætur ekkert stoppa sig í
leitinni að ástinni
sinni einu, Buttercup. Sagan er sögð í gegnum afa sem er að lesa
upp úr sögubók fyrir
veikt barnabarn sitt. Ekki láta nafnið á myndinni blekkja ykkur,
hún hljómar kannski
eins og einhver væmin og léleg ástarmynd en það er hún alls ekki.
Þessi mynd hefur
allt sem til þarf, litríkar og vel leiknar persónur, hallærislega
góðan söguþráð,
afbragðs góðan húmor og vel útfærð hasaratriði.
Ég mæli sterklega með þessari, hún er ein af þessum myndum sem
maður getur horft
endalaust á og ekki orðið leiður á. Ég hýði hvern þann sem ekki
hefur horft á myndina
í vikulok =D
Kvikmynd vikunnar að þessu sinni (18.1 - 25.1) er...
Raging Bull (1980)
Jake La Motta: Did you fuck my wife?
Joey LaMotta: What?
Jake La Motta: Did you fuck my wife?
Joey LaMotta: [pauses] How do you ask me that? I'm your brother and
you ask me that?
Where do you get you're balls big enough to ask me that?
Jake La Motta: I'm gonna ask you again, did you or didn't you? Just
answer the
question.
Joey LaMotta: I'm not gonna answer that. It's stupid. It's a sick
question and you're a
sick fuck and I'm not that sick that I'm gonna answer it. I'm
leaving, If Nora calls tell her
I went home. You know what you should do? Do a little more fucking
and a little less
eating, so you don't have to blame it all on me and everybody else,
you understand
me? You're cracking up! Ya' fucking screw ball ya'!
Þessi mynd er hrein og bein klassík, ógleymanlegur leikur Roberts
DeNiro og Joe Pesci
gera þessa mynd eina af þessum myndum sem hægt er að horfa á aftur
og aftur.
Myndin fjallar um í stuttu máli hinn sí-reiða Jake La Motta
(DeNiro) sem er
atvinnuboxari og heimaboxari og hinn snarklikkaða bróðir hans Joey
(Pesci) sem er
ofbeldishneigðari en góðu hófi gegnir. Við fygjumst með því hvernig
hann byggur upp
góðan orðstír inn í hringnum en vondan orðsír utan hans, enda er
hann með
allasvakalega sjálfseyðingarhvöt.
Myndin hlaut tvenn óskarsverðlaun m.a. hlaut Robbi Nýra styttu
fyrir leik sinn.
Leikstjóri myndarinnar er sjálfur Martin Scorsese sem allir ættu að
kannast við, og þeir
sem gera það ekki ættu að skammast sín;)
Kvikmynd vikunnar að þessu sinni (07.01-14.01) er...
Mary Poppins (1964)
"Mary Poppins: [singing] Chim Chiminy, Chim Chiminy, Chim Chim
Chiree! When
you're with a 'sweep, you're in glad company".
Bert: "Never was there a more happier crew, than them what sings
Chim Chim Chiree
Chim Chiroo! Chim Chim Chiminy Chim Chim Chiree Chim Chiroo..." Hin
lífsglaða og
töfandi barnapía Mary Poppins söng sig inn í hjörtu heimsins árið
1964. Þessi mynd
hefur notið mikilla vinsælda enda yndisleg mynd hér á ferð. Hin
myndarlega Julie
Andrews leikur barnapíuna og töfrakonununa sem þekkt er fyrir að
eiga hæfileikaríka
regnhlíf. Mæli með að allir horfi á þessa mynd og ekki er verra ef
maður nær allri
fjölskyldunni fyrir framan kassan.
Kvikmynd vikunnar að þessu sinni (31.12-07.01) er...
The Fly (1986)
"Ronnie: Be afraid. Be very afraid." Þessi frægu orð segir
Geena Davis í kvikmynd
David Cronenberg's, The Fly eða Flugunni. Jeff Goldblum leikur
vísindamanninn Seth
Brundle en hann býr yfir uppfinningu sem myndi gjörbylta
vísindaheiminum, hann
getur nefnilega "teleportað" hluti frá einu "podi" til annars í
tilraunastofunni sinni.
Fullkomnun er þó ekki náð en í huga Seth's er það þegar hann nær að
flytja sig sjálfan
úr einu "podi" í annað. Einn daginn finnst honum tími til kominn að
láta á það reyna,
hann skellir sér inní annað "podið" og byrjar flutninginn. Þó veit
hann ekki að húsfluga
ein hefur laumað sér inn með honum og þegar hann flyst yfir þá
hefur DNA-flugunnar
sameinast hans eigins. Hefst þá ein svaðalegasta umbreyting
kvikmyndasögunnar í
hryllingsmynd sem er ekki fyrir viðkvæma.
Fyrri myndir vikunnar: