Jæja, það hlaut að koma að því… Kötturinn minn er týndur og er búinn að vera í hvarfi síðan svona 7. júní. Litur: Svartur. Merking: Ekki nein, hann var frjáls sem fuglinn. Stærð: Í minni kantinum. Staðsetning: Efra-Breiðholt, svona í kringum Jórufell og þar fyrir þá sem þekkja, hann var mikið þar. Ef einhver sem les þetta hefur séð hann/klappað honum/keyrt yfir hann/rænt honum eða á einhvern hátt tengst honum síðustu daga þá máttu senda mér póst hingað. Takk.