Ef það er ekki of seint, þá get ég hjálpað þér með þetta allt. Er búin að vera í þrjár vikur með kettling þar sem mamman hugsar ekki um hann.
Byrja á því að fá sér pela (eða sprautu fyrstu dagana) og mjólkurduft. Passaðu að vigta hann reglulega til að fylgjast með hvort hann fái nóg að drekka. Svo þarftu að fylgjast með hvort mamman sleikir hann eftir pelagjöf því hann þarf bæði örvun fyrir meltingu og losun, hann semsagt kann ekki að melta og kúka sjálfur. Ef hún gerir það ekki skaltu strjúka með blautum volgum þvottapoka yfir magann og rassinn.
Svo skaltu bara nota google, getur leitað að “caring kittens” eða eitthvað, fullt af síðum sem segja allt um það sem þarf að gera.
Svo skaltu líka fylgjast með mömmunni, því hún gæti bæði líkamlega og andlega komið illa úr þessu. Mín kisa varð árásargjörn og er eiginlega alveg óþolandi.