Gaur án gríns þú ættir að prófa rugby e-n tíman, ég myndi segja að þú ættir að reyna að fá að spila 2-3 leiki eða svo, nema þetta er ekki spilað á Íslandi og ég stórlega efast um að þú eigir heima eitthversstaðar í útlöndum.
En þá er náttúrulega spurningin hvort þú myndir þola rugbyið. Eða hvort þú gætir kastað þessum ‘dvergum’ þínum, sem eru yfirleitt um 1,90 ef ekki hærri upp í loftið.
Því hærri sem maðurinn er sem er kastað upp í loftið því meiri möguleiki er á því að hann nái hærra upp en náunginn í hinu liðinu sem reynir að taka innkastið og því meiri möguleiki er á því að maður fái boltann.