Já, það getur svosem verið. Persónulega þá finnst mér fólk oft ofmeta mikilvægi kynhneigðar.
T.d. hefði mér þótt skemmtilegra að fá að vita að hvort hann væri áhugamaður um töppíver skálar eða hvað móðir hans hét og ég meina það.
Nú hefur Rowling hins vegar gefið misgóðum áhugamönnum um Potter ástæðu til enn frekari ósmekklegri spunaskrifa en áður hafa birst. Um samkynhneigð Dumbledores og lostugt sængurlíf hans.
Æi ég veit það ekki, hann er einhvern veginn heilög persóna fyrir mér, en svo þetta túlkist ekki ranglega þá er samkynhneigð hans enginn löstur í mínum augum, bara aukaatriði.