Þar sem samot er að fara að flytja til Íslands aftur (fögnum því eins og best er) þá var ég beðin um aðkoma því til skila að hann verður mikið fjarverandi næstu vikuna þar sem hann þarf að fara í gegnum Indonesiu, Singapore, Taíland, Sameinuðu Arabisku Furstadæmin, England til að komast loks til Íslands. Það ferðalag mun taka um það bil viku.

Svo er best að minnast á það að ég er í prófum núna um þessar mundir svo að ég verð eitthvað meira fjarverandi en ella. Ef þið hafið einhverjar spurningar, takið eftir einhverju sem er varhugavert, sendið þá mér skilaboð. Ég mun reyna að fara á huga á hverjum degi, en ég veit ekki hvort ég mun geta fylgst með áhugamálinu eins og skyldi.