hahaha, vorum að keppa við þennan gaur, laugardaginn 24. september.
Hann stóð alltaf fyrir utan hasarinn þegar eitthvað var að gerast og talaði eins og hörkutól XD.
Þegar Sævar litli skoraði fyrsta markið sitt og strax eftir á kom einhver og tjékkaði hann í klessu (mjög hetjulega gert) stóð hann fyrir framan markið við hliðina á mér og muldraði “já taka þessu litlu fokking rottu”. Svo sá ég líka einu sinni þegar hann sat á bekknum og Anton var að bögga einhvern SA gaur inná þá stóð hann upp og muldraði aftur “fokking drepa þetta helvíti. helvítis fáviti”.
haha, ég sá hannn nú reyndar aldrei gera neitt sjálfur í þessu öllu saman, honum nægði víst að muldra í hálfum hljóðum :)