1. Þarna er glænýr Washburn T-24, æðislegur bassi, mæli eindregið með honum ef einhver er að spekúlera í nýjum bassa.
2. Fender BG-32 NS, keypti hann notaðan af notenda hér á huga fyrir tæpu ári.
3. Apollo, fyrsti bassinn minn, keyptur fyrir rúmlega 4 árum, gengdi mér vel í byrjun :)
4. Gult Ukulele frá Krít.
5. Art & Lutherie Dreadnought svartur, keypti hann fyrir tæpum 3 árum í Tónastöðinni, sé sko ekki eftir þeim kaupum :)
6. Mahalo ukulele sem ég keypti með Art & Lutherie gítarnum.
7. Klassískur gítar sem mér var gefið í fermingargjöf útá Portúgal. Handsmíðaður og ómerktur. Fyrsta alvöru hljóðfærið mitt :)
8. Didgeridoo frá Indónesíu, gert úr bambus. Keypt í Kolaportinu.
9. Lítil kjöltutromma frá Krít.
10. Line6 LowDown 150w bassamagnari, kannski ekki besta dótið sem hægt var að fá, en engu að síður stórglæsilegur. Hann leynir á sér….
Og að lokum sjáið þið tvær Hohner munnhörpur og að ég nenni ekki að hreinsa til á borðinu….
Hvernig lýst ykkur annars á þetta?