Það er náttúrulega ekkert töff við það að vera með kynþáttafordóma.
Mín tilfinning fyrir kynþáttafordómum á Íslandi, er að stærstur hluti Íslendinga hafni opnum og ofbeldisfullum rasisma og vilji ekki horfa upp á að félagsskapur, sem byggir á hugmyndafræði rasismans skjóti rótum hér á landi. Hins vegar hefur þessi hópur oft á tíðum ekki velt málefnum innflytjenda mikið fyrir sér, er ekki í beinum tengslum við innflytjendur eða fólk af erlendum uppruna og álítur þess vegna litla sem enga fordóma eða mismunun eiga sér stað á Íslandi. Við, sem störfum í nánum tengslum við fólk af erlendum uppruna, venslafólk þess, vinir og auðvitað fólkið sjálft veit hins vegar manna best að hér á landi verður fólk reglulega fyrir fordómum og mismunun vegna uppruna síns.
Eat, Sleep, Breathe, Drink, Arsenal.