Sæl verið þið. Er ný á þessu spjalli og langar að forvitnast um nokkra hluti.

Hefur einhver reynslu af því að eignast fyrsta hestinn alveg vel 20+ og hafa þá ekki stundað hestamennsku af viti í mörg ár?

Ég var rosalega mikil áhugamanneskja þegar ég var yngri, fór á námskeið eins og ég gat, hestaleigu og var mikið uppí hesthúsum til að sníkja reiðferð.

Núna í dálítinn tíma hef ég verið að hugsa mikið um hvort ég ætti að fá mér hest og þá er nú gott að fá ráð frá vönu fólki eins og t.d hvað sé best að gera áður en maður fer og fær sér hest og hvað þarf að hugsa um eins og t.d kostnaður (ekki byrjendakostnaður) almennt vegna fóðurs og húsnæði.

Væri gaman að fá svö takk :)