Tekið af Yggdrasil eða Manni Lifand, man ekki hvort :P
Orkuhristingur
Frosin jarðaber, u.þ.b 6 stk.
1/2 banana (eða 1 epli)
2 msk vanilluskyr
Smá mjólk eða rísmjólk
1 dl hveitikím
Á að vera mjög orkugefandi.
Banana- og döðlu skyrdrykkur
Fyrir 2
1 dós (120 ml) fitulaus, jógúrt
10 þurrkaðar döðlur lagðar í bleyti í nokkra klukkutíma
2 dl hreint skyr
2 þroskaðir bananar
1 tsk vanilludropar eða vanilluduft
1 msk agavesíróp
Allt hrært vel saman í blandara og borið fram í háum glösum.
Það má þynna blönduna með undanrennu ef þarf.
**
Svo bendi ég þér bara á www.cafesigrun.com ;) fullt af allskonar hollum uppskriftum, og mikið lífrænt ef þú ert fyrir það. Annars með þessi boost þá er bara að sulla saman einhverjum frostnum ávöxtum og blanda með skyr, mjólk eða vatni, allt eftir hvaða bragð/hvernig áferð þú fílar.