Sá einhver manninn frá Suður Afríku sem var að sýna listir með stiga rétt hjá lækjartorgi í dag?

Ég hef oft séð svona götulistamenn á svona hátíðum og þeir eru yfirleitt ekkert það skemmtilegir. Gera einhverjar listir og búið.

En þessi var snillingur. Djöfull var hann fyndinn. Hann sagði meiri og fyndnari brandara en Laddi á heilu uppistandskvöldi.

Þetta var gott.