Jæja, ég var að kaupa þennan blessaða fifa 2006, bjóst við stórum og flottum leik en fæ í staðinn nákvæmlega sama leikinn nema 4 hlutir nýir eða svo. Í fyrsta er þessi leikur ÞVÍLÍKT erfiður og eyðileggur allt skapið í þer. Þegar maður ýtir á kassa og tæklar fær maður ALLTAF GULA EÐA RAUÐA! Ekkkert annað í boði! Svo þegar þú veist að þú ferð í boltann þá ferðu SAMT alltaf í manninn og hann skíst bara upp í loftið. Svo þegar maður skítur boltanum þá svífur hann í loftið eða fer framhjá, þú verður að vera 4 metra frá markinu til að hitta á rammann. Svo þegar þú ert kominn í návígi við markmannin þá ver hann ALLTAF eða þú skítur í stöngina og hinir dúndra boltanum lengst út í rassgat. Prufaði ég svo þetta MANAGER dæmi sem er NÁKVÆMLEGA sama og í gamla nema þú færð að velja sponsor… VEI! Svo er þetta miklu flóknara en í 2005. Þegar maður simuleitar í leiknum þá endaru langoftast með 0-0 eða tapar 5-0. Ég er gjörsamlega brjálaður útí þennan leik! Þetta er ömurlegasti fífa leikur til þessa! HVAÐ VORU ÞEIR AÐ SPÁÁ!!! Heimsku EA fífl sem geta ekkert í neinu. Það er bókstaflega EKKERT nýtt komið í hann! EKKI NEITT! Svo er fáranlegt hversu SUMIR leikmenn eru velgerðir meðan aðrir eru fárljótur og asnalegir. Bara spítukallar. Svo nota þeir atriði úr 2005 leiknum!! Hversu nýskir geta þessir menn orðið! Það koma senur af mönnum þegar þeir klúðra, skora eða koma inná ( það sama sem var notað í 2005). Ég bjóst svo við öðruvísileik….. því miður fékk eg bara úldinn leik… Þetta er sá sami… Ekki vera að eyða 5700 kr í hann.. þetta er ekki skemmtilegt, maður verður skapvondur og langar að gríta tölvuni í gólfið, hefði gert það en kl er of margt. Já! Svo þessi tónlist?!? HVAÐ ER ÞETTA!! Sumt af þessu er frá OASIS og svona en LANGT felst er eitthvað RUGL sem er VIÐBJÓÐUR og ENGUM langar að hlusta á þetta! Þetta er bara eyðsla á hulstrum fyrir betri leiki. Takk fyrir mig