Klárlega bestu tónleikar sem ég hef farið á! Og ég efast um að eitthvað geti toppað þá :) Damien Rice var náttúrulega aðalatriðið, fyrir mig allavega, og var ég ekki fyrir neinum vonbrigðum með lagavalið hans, hefði reyndar alveg viljað heyra Amie :) Þurfti svo að fara eftir Hjálma þannig ég missti af fjórum síðustu, hefði viljað sjá Egó… En ég horfi bara á þetta þegar það kemur á netið… Mugison kom á óvart og KK líka, var ekki alveg að fíla Rass og dr. gaurinn, man ekki hvað hann heitir, en Hjálmar voru snilld :D