sæl öll,
mig langaði bara að henda hér inn smá grein eða öllu heldur útskýringargrein um hver Jesús er í raun, því augljóst er á öllu að þið vitið í rauninni mjög lítið um hann!

Þetta mun vera fyrsti af nokkrum útskýringarköflum mínum hér. Munið það er engin að pína ykkur að lesa þetta þannig að ég nenni ekki að svara ykkur sem verið með einhver skítakomment um að börnin mín þrjú eigi að drekka blásýru því ég sé óæfur faðir því ég er að kúga börnin mín til að trúa á Jesús samanber það sem hinn hjartgóði og barngóði skuggi85 sagði hér um daginn!

Guð hefur alltaf verið til, hann sagðist vera Alfa og Omega eða upphafið og endirinn á öllum hlutum.

Ef þið lesið The Genesis eða fyrstu Mósesbók sem er sköpurnarsagan þá sjáið þið það, þegar það er verið að lýsa því er Guð skapaði heiminn þá segir hann alltaf vér! sem merkir fleirtala! En sá sem var með honum var hans eingetni sonur Jesús!

Ef þið hafið lesið ykkur til í erfðafræði og hvað klónun merkir þá langar mig aðeins að leiða ykkur inn í smá sannleik mínir kæru hugarar;o)


Vitið þið hvað eingetin þíðir í raun og veru?

Monogetis heitir það á frummálinu, hebresku, eða að Jesús sonur Guðs var í raun eingetinn af Guði sem merkir að Guð má segja klónaði sjálfan sig og skapaði Jesús. Þeir tveir voru saman að skapa allan heiminn og um leið allt mannkynið.

Jesús sagði að ég og föðurinn erum eitt!

Fólk í dag veit ekki neitt og nennir ekki að vita neitt um sannleikann.

Sú fórn sem Guð veitti okkur mönnunum var Guði slík og mikil því Guð elskaði mennina svo mikið að hann fórnaði syni sínum, þeim besta og mest elskaðasta sem var í raun hann sjálfur því þeir voru svo líkir. Þess vagna vil ég vara ykkur öll við þeim villukenningum sem eru núna á lofti varðandi að Jesús hafi verið með Maríu Magdalenu sem var jú mella!

Samkvæmt nýjustu smsæriskenningunni átti Jesús að hafa lifað af allar þessar pyntingar sem við sáum svo vel lýstar í myndinni Passion of Christ eftir Mel Gibson. Samkvæmt samsæriskenningunni átti Jesús að hafa átt afkvæmi með Maríu Magdalenu og flust til Spánar???

Þetta er svo mikil synd að halda þessu fram og að láta sér detta svona vitleysa í hug! Af hverju spyrja mörg ykkar?

Mátti Jesús ekki giftast eða eignast börn eða stunda kynlíf?

Ég hef átt rökræður við tugi ef ekki hundruð Íslendinga sem eru svo hneikslaðir á þessari skoðun minni að ég sé svo einfaldur að viðra ekki einu sinni þann möguleika að Jesús hafi verið með mellu!

En megin mergur málsins er mínir elsku hugarar er sá að ef við gefum okkur það að Jesús hafi bara verið mannlegur þá segir það okkur það í raun að Guð hafi ekki í raun fórnað sínum besta manni og syni! Jesús er sú eina fullkomna manneskja sem hefur gengið hér á jörðinni. Hann var guðleg vera, sonur Guðs.

Satan (sem merkir andstæðingur) sagðist ætla takast að leiða alla menn frá Guði, satan sagði alltaf að mannkyninið mun snúast gegn þér (Guði og Jesús)

Spádómar Biblíunnar segja að mennirnir og þá tekur Biblían sérstaklega fram að konur munu fara á vit ævintýra og þær munu leiða menn frá sannleikanum. Horfið á þáttinn hjá Þórhalli miðli! Þar eru áhorfendu sem eru konur um fimmtugt og aðeins í yfirvigt og eru 80% af áhorfendum! Þær eru orðnar svo leiðar á öllu að þetta er orðið það eina sem veitir þeim orðið eitthvað til að smjatta á.

Biblían viðurkennir að það sé hægt að ná sambandi við aðrar víddir en það eru ekki dáið fólk! Heldur illir andar sem vita allt um okkur og eru að vinna í því að afvegaleiða allt mannkyn frá sannleikanum!

Djöfull þýðir lygari! Vitið þið hver er faðir lýginar og hver var FYRSTA lýgin sem var leidd inn í okkar heim hér?
Djöfullinn sagði við Evu er hann freistaði hennar að éta hin forboðna ávöxt: Vissulega munuð þið ekki deyja!!!!

En ef þið nennið að lesa og kynna ykkur hvað dauði er og hvað gerist eftir að við gefum upp öndinna lesið þá endilega Prédikarann kafla 9 vers 5:

Því að þeir sem lifa, vita að þeir eiga eftir að deyja, en hinir dauðu vita ekki neitt og hljóta engin leun framar.
Pr. kafli 9 vers 10:
allt sem hönd þín megnar að gjöra með kröftum þínum, gjör þú það, því að í dánarheimum, þangað sem þú fer, er hvorki starfsemi né hyggindi, né þekking né viska!

Munið eitt er Jesús var í eyðimörkinni þá kom Satan til hans og reyndi að freysta Jesús með ýmsum aðferðum. Ein freysting var sú að ef Jesús mundi falla fram og tilbiðja Satan þá fengi Jesús öll ríki jarðarinnar í sín völd! Jesús afþakkaði boðið en um leið hafnaði ekki þeirri staðreynd að Satan hafði tögl og haldir á heiminum og ríkjum jarðarinnar.

Áður hafði verið háð mikið stríð á himnum þar sem Satan og hans illu englar snérust gegn Guði og Guð og Jesús unnu þá orrustu. Satan og hans englum var kastað niður á jörðinna.
Í dag leikur hann lausum hala til að afvegaleiða sem flesta frá sannleikanum.

Hann mun koma eins og úlfur í sauðagæru og lauma falskenningum eins og að Jesús hafi í raun átt í ástarsambandi við Maríu Magdalenu og flúið til Spánar og átt með henni börn. DaVincy Code er hreinn skáldskapur og synd frá a til ö og er lýsandi dæmi um það sem Jesús sagði um hinu seinustu tíma fyrir Harmagedón.

Tímana Tákn.

Menn fara á vit ævintýra og munu hafna sannleikanum. Hroki og dónaskapur er það sem ég hef upplifað seinustu misseri varðandi þessar umræður í stóru mæli. Menn sem segja mig vera ruglaðan því ég er ekki sammála þróunnarkenningunni og segja Guð ekki vera til.

Hverjir eru þeir að segja hitt og þetta, að þetta sé svona og hinsegin? Það eruð þeir sem spotta mig sem láta eins og dramblátir dónar.

Hvernig veit músin þegar maðurinn stígur upp í bíl og ekur í burtu hvernig við förum að þessu. Sama er með okkur mennina sem erum eins að reyna að rembast við að segja hvernig heimurinn varð til og að Guð sé bara nýjasta greining geðsjúkdóma hjá fólki sem er geðveikt. Það er nýjasta kenningin ykkar spottara.

En hér eru nokkrir ritningastaðir sem þið getið lesið um og kynnt ykkur tímana tákn:

Hungursneyð, -Matteus 24:7, Opinberunarbókin 6:5, 6:8
Hernaður í áður óþekktu mæli: Matteus 24:7 Opinb.6:4
Drepsóttir: Lúkas 21:11, Opinb.6:8
Vaxandi Lögleysi: Matteus 24:7
Örðugir tímar: 2 Tímtót.bréf 3:1
Óhófleg peningaást: 2 Tímótbréf 3:2
Óhlíðni við foreldra: 2 Tím. 3:2
Kærleyksleysi: 2 Tím. 3:3
Elska munaðarlífið meira en Guð: 2 Tím. 3:4
Taumleysi: 2 Tím. 3:3
Ekki elskandi það sem gott er: 2 Tím. 3:3
Fólk hunsar yfirvofandi hættu: Matteus 24:39
Spottarar afneita sönnunum um hina síðustu daga: 2. Pétursbr. 3:3-4

Ég vil leifa ykkur að sjá hvað er meint með þessum ritningarstöðum hvort það eru menn sem keyra á gröfum í gegnum búðarglugga til að stela um hánótt til að fjármagna fíkniefnaneyslu eða eitthvað annað.

Að lokum langar mig að minna ykkur á það sem Jesús sagði er þið munuð verða leidd fyrir dóminn ykkar (í nánari framtíð) og eftir að allir munu reistir verða upp frá dauðum að Jesús mun ekki kannast við ykkur fyrir föðurinum nema að þið hafið kannast við hann (Jesús) meðal mannana…

Lecte