Allavega fyrst að fara til læknis og athuga hvort þetta sé eitthvað líffræðilegt, ef ekki þá gæti þetta líka verið sálfræðilegt. Man eftir strák á leikskóla sem ég var að vinna á sem pissaði stundum oft í sig á dag, fimm ára, vegna þess að hann vildi ekki missa af því sem var í gangi. Hann fór oft til lækna og eitthvað, mig minnir að það hafi síðan verið gert svona umbunarkerfi handa honum svo hann hætti þessu og það virkaði.