Sælir, Huga-menn. Við norðanmenn höfum verið að spá í hvort það væri of mikið mál að birta sundurliðuð úrslit í mótum, þ.e. Battle Points, Sportmanship og fyrir málningu. Nú veit ég að ég fékk heil 29 (ehemm…) stig fyrir bardagana. Það væri mjög gott að geta séð hversu mikið ég fékk fyrir Sport og málningu, svo dæmi sé tekið. Kannski er þetta eitthvað feimnismál (sérstaklega Sport) en þá verða menn bara að bíta í það súra ef þeir hafa ekki staðið sig vel í þeirri deildinni. Þá mætti líka benda á það á móti hversu vandræðalegt það er að fá bara 29 GP!
Ég er enn svekktur yfir þessu :-)

Vona að enginn taki þessu sem einhverju nöldri, mér finnst þetta bara hluti af hobbýinu og þetta er eitt af því sem má bæta hér á Huga. Takið samt eftir að ég er ekki að setja út á störf þeirra Atla og félaga. Úrslitin hafa yfirleitt komið mjög tímanlega inn, og eiga þeir hrós skilið fyrir það.

Heyrumst,

Siggi G
Húsavík
<br><br>
www.warpchylde.iwarp.com
www.warpchylde.iwarp.com