Hérna ætla ég að koma með smá tips til nýrra klana. það er of mikið um það að nýstofnuð klön hætti bara af því að hitt liðið var miklu betra og ekkert í planinu þeirra gekk upp. Það tekur klanið ykkar svona 1 - 3 mánuði eða meira til þess að koma á balance í klaninu! Það þýðir ekki að stofna klan gera heimasíðu vera rosaspenntur fyrir skrimm…úps við drullutöpuðum best að hætta.

við í gh höfum keppt´oftar en 10 sinnum við 89th og við höfum alltaf tapað! Ekki hættum við. Það var af því að við vonuðumst eftir að sjá bætingu og núna í síðasta skrimmi á móti 89th vorum við næstum búnir að vinna þá….og þá var gaman að vera í klani!

Ef þessi klan heimur á að ganga eitthvað verður að halda áfram með nýstofnuð klön!

Ég var bara dáldið pirraður því að idc hættu eftir skrimm sem þeir töpuðu og GB líka (allavega hef ég ekkert heyrt frá GB og síðan down þannig ég áætla að þeir séu dauðir)

Vonandi vekur þetta smá umræðu hérna á huga…